Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 34

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 34
98 ná því, þá endar með að við fáum flugvél," en áður en það gæti orðið varð að leysa mörg vandamál. Börnin voru komin á skólaaldur og þau varð að fræða, en þar sem næsti skóli var í nokkurra dagleiða fjarlægð, urðu foreldrarnir að taka að sér fræðsluna. Hvorugt þeirra hafði notið mikillar skólagöngu í æsku og kennslan í Birki- lundi, sem venjulega hófst eftir 12 stunda vinnudag, fór þannig fram, að allir voru nemendur, kennarinn líka. Þau notfærðu sér einnig útvarpskennslu fyrir börn í afskekktum byggðum. Þannig gengu þessi börn í skóla, án þess nokkru sinni að sjá skóla eða skólastofu. Hrólfur hafði einstakt lag á að gera námið aðlaðandi. Stærðfræðina samræmdi hann viðfangsefnum og daglegum störfum býlisins. Það þurfti að reikna út hve mikinn við þurfti að fella í nvja hlöðu eða hve mikla orku þurfti til þess að leysa ákveðið erfiði. Þrúða, sem aðeins var tíu ára, hafði valið flug og flug- vélar sem sérnám og sýndi í öllu sömu elju og áhuga og faðir hennar. Síðar tók hún að lesa stjörnufræði og svo grasafræði, og brátt gat hún nefnt á latínu öll tré og jurtir, er fundust í umhverfi Birkilunds. Útvarpskennari einn hvatti Þrúðu til þess að fara út í skóginn og gefa skýrslu um allt er hún sæi þar. Hún reit dálitla bók um efnið með litmyndum til skýringar. Sérfræðingur einn í gróðri og dýra- lífi óbyggða Canada sagði nokkrum árum síðar, að þekking hennar á þessu efni jafngilti háskólanámi. Var það börnunum í Birkilundi hindrun, að þau gátu ekki gengið á reglulegan skóla? Hrólfur sagði um þetta: „Ef til vill er þekking þeirra víðtækari en flestra barna á þeirra aldri. Má vera að lífsskilyrðin, er þau bjuggu við, valdi því. Þau skyldu frá upphafi, að einungis með áreynslu gátu þau fengið það, er þau vantaði." Hrólfur viðurkennir fúslega, að nám bamanna hafi orð- ið honum sjálfum mikil efling til sjálfsnáms. Fróðleiks- þorsti hans kenndi honum að meta bækur og velja góðar

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.