Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 43
107
aðeins til þess, að venjulegur vinnuflokkur með vinnuvélar
getur unnið á hverjum stað í fáeina daga. Á þennan hátt
þokast verkin áfram hægt og bítandi fet fyrir fet og verður
venjulega eigi lokið á minna en áratug, en oftar á áratug-
um. Fjöldinn allur af þessum vegagerðum koma byggðun-
um að engu liði fyrr en lokið er, vegna þess að þær liggja
um óbyggðir, eða notast ekki vegna vöntunar á brúm yfir
ræsi og ár.
Til frekari glöggvunar skulum við hugsa okkur tíu slíka
vegakafla, það er vafalaust hægt að finna þá svo tugum
skiptir, og með þeim vinnubrögðum, sem nú eru á höfð,
skulum við gera ráð fyrir, að bygging þeirra hvers um sig
og allra í sameiningu taki tíu ár. Til frekari glöggvunar
skulum við gefa þeim tölurnar 1—10. Það verður þá fyrst
eftir tíu ár sem þessir tíu vegakaflar koma í gagnið. Á þessu
tímabili hafa þá, ef að líkum lætur, vegagerðarflokkar tíu
sinnum sett sig niður á hverjum stað með tjöld, skúra og
vinnuvélar og tekið sig jafn oft upp aftur eða eitt hundrað
sinnum við alla vegakaflana. Má þá, án þess að ýkja nokk-
uð, gera ráð fyrir, að nálægt 20% af því fé, sem gengið hef-
ur til framkvæmdanna, hafi farið í það að flytja, búast um
og taka sig upp aftur, og allt það fé, er gengið hefur til
framkvæmdanna, hefur auðvitað legið arðlaust og gagns-
laust þau tíu ár, sem framkvæmdin hefur tekið.
Hver heilvita maður ætti að sjá að ekkert vit er í svona
aðförum. í stað þess að hafa alla þessa vegakafla í takinu
árlega á vitanlega aðeins að taka einn fyrir á ári og ljúka
honum og þannig koll af kolli. Fmginn tapar neinu við
þetta, en að minnsta kosti níu af hverjum tíu græða á því.
Fyrsti vegakaflinn kemur níu árum fyrr í gagnið en ella,
sá næsti átta árum fyrr o. s. frv. og líklega yrði hægt að
ljúka öllum vegaköflunum á átta árum vegna þess, sem
sparaðist á því, að flutningunum á öllum útbúnaði frá og
til vinnustaða fækkaði úr eitt hundrað í tíu. Meðaltíminn,