Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Blaðsíða 25
25
Fyrst er þá að áætla hve mikið 100 vetrarfóðraðar kindur
gefa af sér og að hve miklu leyti það getur talizt fundið fé.
Með hliðsjón af verðlagsgrundvelli landbúnaðarins og stað-
háttum hjá hinum unga, eyfirzka bónda ætla ég það sæmi-
lega áætlað 40.000.00 kr. bruttó. Óumdeilanlegur tilkostnað-
ur er svo hús yfir fénað og hey, og fóður fjárins í húsi og á
ræktuðu landi. Gera verður ráð fyrir sæmilegum bygging-
um, hagkvæmum og varanlegum. Fóðurþörfin 2—2x/2 hey-
hestur, eitthvað af fóðurbæti, og svo beit vor og haust á rækt-
uðu landi, er annað hvort rýrir uppskeruna eða eykur áburð-
arþörf túnanna, þrátt fyrir þann áburð, er til fellur frá beit-
arpeningnum. Svo er það hirðingin með margvíslegu móti.
Úr henni má gera mikið eða lítið eftir ástæðum og viðhorf-
um, en framhjá því verður ekki komizt, að auk daglegrar
umhirðu þann tíma, er féð er á húsi, kemur vöktun um sauð-
burð, smölun til rúnings, göngur, flutningur á sláturstað og
slátrun, og ekki má heldur gleyma böðun, bólusetningum,
inngjöf ormalyfja o. s. frv. Hér við má svo bæta, að sauðfjár-
búskapur hefur víða verið all áhættusamur vegna náttúr-
legra áfalla, svo sem hausthríða, hættu í lækjum og tjörnum
og flæðihættu við sjó. Hve mikið allt þetta skerðir heildar-
tekjurnar læt ég hvem og einn um að reikna, en hræddur er
ég um, að þær reynist ekki allar fundið fé, eða það er þá
ekki eins vandfundið og ætla mætti og fleiri leiðir, sem koma
til álita.
Ungi bóndinn sagðist gera sig ánægðan með 3000 kg af
mjólk eftir kýrnar sínar. Ég ætla nú að hann hafi látið full-
mikið af nægjusemi sinni, en þótt svo væri, þá eru því miður
alltof margir, er láta sér þetta nægja. Gerum ráð fyrir, að
hér sé átt við reiknaðar árskýr og að bústærðin sé um 20
slíkar. Enginn vafi er á því, að með sæmilegri natni og ná-
kvæmni í meðferð og fóðrun kúnna er hægt að auka afköst
flestra slíkra búa um 500 kg af mjólk á reiknaða árskú, og
sé gert ráð fyrir meðalfeitri mjólk, eins og hún er samkvæmt
skýrslum S. N. E. (Samband nautgriparæktarfélaga Eyja-