Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Page 100
103
Það er varla hægt að skilja svo við sæðingarnar, að ekki
sé minnzt á það hvimleiða ástand, sem ár hvert lætur á sér
bæra á einstaka heimilum, að mjög erfiðlega gengur að fá
kálf í kýrnar. Það er ekkert tiltökumál, þótt ein og ein kýr
verði haldin þessum kvilla, en stundum grípur hann mik-
inn hluta kúnna á heimilinu, og er þá engin furða þótt við
borð liggi, að bóndinn verði gráhærður af ergelsi og í gremju
sinni skelli skuldinni á sæðingarnar, sem þó eiga sjaldnast
eða aldrei nokkra sök á þessu. Sá möguleiki er að vísu til,
að kýr, sem ekki hefur haldið við sæðingu, haldi við nauti,
en líka er vel þekkt, að kýr, sem ekki halda við nauti, halda
við sæðingu, og þar sem ekki verður breytt um aðferð nema
með þriggja vikna millibili, er ógerlegt að fullyrða, hvort
heldur breytt aðferð eða breytt ástand kýrinnar gaf árang-
urinn. Það, sem gerir málið miklu flóknara, er sú stað-
reynd, að inikill munur er á árum. Ekki þó þannig, að viss
ár séu slæm fyrir heildina, heldur er áramunurinn alveg
tengdur búunum og getur verkað alveg gagnstætt á tveimur
nærliggjandi býlum. Á mörgum býlum er ástandið alltaf
gott eða sæmilegt, á mörgum misjafnt en mjög sjaldan allt-
af slæmt.
Tafla IX sýnir árangur sæðinga á þremur býlum í fimm
ár, og eru þessi býli valin af nokkru handahófi úr mörgum
hliðstæðum. Á býli I hafa sæðingarnar gengið mjög bág-
lega 1955. Næsta ár reynast þær skár en þó ekki vel, en þá
er auðsjáanlega um helmingi kúnna haldið undir naut.
Ekki virðist þó sú tilbreytni hafa þótt til frambúðar, því að
1957 eru sæðingar aftur einráðar og árangur þó ekki góður,
en viðunandi. Árið 1958 ganga sæðingarnar vel, og ágætlega
árið 1959. Býli II gefur nokkuð aðra svipmynd af sæðing-
um. Fyrsta árið ganga þær að vísu mjög illa, og næsta ár
virðist aðeins nokkuð af kúnum sætt, en þá með ágætis ár-
angri. Árið 1957 eru sæðingar aftur einráðar og reynast með
ágætum. Sama má segja um árið 1958, þótt það jafnist ekki
á við árið á undan, en síðasta árið er árangurinn af sæðing-