Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Side 104
107
þunn, mjúk húð; hryggur beinn; ágætar útlögur; boldjúp-
ur; malir lítið eitt hallandi og þaklaga; sæmileg fótstaða;
smáir spenar, reglulega settir; ágætt júgurstæði.
Reyður, móðir Þela, virðist hafa verið drjúgmjólka en
engin afburðakýr. Frá 2. til 8. kálfs mun hún hafa mjólkað
um 4500 kg með 17000 fe að meðaltali á ári, eitt ár vantar.
Hún mun hafa verið hraust, varð 15 ára.
Klaki, faðir Þela, var mikið notaður hjá S. N. E. á sæðing-
arstöðinni á tímabilinu 1951—57. Hann var undan mjög
góðri kú, Gráskinnu frá Galtalæk, og voru alin undan hon-
um mörg naut. Reynslan hefur þó sýnt, að Klaki var mjög
gallaður. Margar dætur hans eru hámjólka, en allt of margar
þeirra erfiðar í mjöltum, viðkvæmar og selja illa og hafa af
þeim ástæðum verið drepnar á unga aldri. Synir Galta hafa
reynzt misjafnlega, en þó sumir mjög vel, og er Þeli einn
þeirra.
Dúfa, móðir Fylkis, var prýðileg kýr, ekki nijög mjólkur-
há framan af ævi, en seig á jafnt og þétt. Á árunum 1954—56
mjólkar hún að meðaltali 4524 kg með 4.54% iitu, eða 2053!)
fe að meðaltali á ári. Reynslan af Kolskegg, föður Fylkis, er
mér ókunnug. Kolskeggur hlaut II. verðlaun 1955.
Haustið 1956 voru teknir 19 kvígukálfar undan hvoru
nauti, fárra daga gamlir, og aldir upp á Grísabóli við Akur-
eyri. Um uppruna kálfanna og eldi er sama að segja og sagt
var um kálfana í fyrstu afkvæmarannsókninni. Framfarim-
ar eru einnig mjög áþekkar og enginn teljandi munur á
flokkunum (sjá töflu X).
Kálfarnir voru bornir á tímabilinu frá 13. ágúst—15. nóv.
Brjóstmál þeirra er tekið fyrsta sinn 21. des., en úr því mán-
aðarlega til 22. júní 1957. Því næst 1. nóv., eða skömmu
eftir að kvígurnar eru teknar inn, og að lokum 3. maí 1958,
eða skömmu áður en þær fara út. Ennfremur er reiknað
brjóstmál þeirra sex mánaða gamalla og eins árs, og gefur
það ef til vill réttastan samanburð, því að ofurlítill aldurs-
munur er á flokkunum. Fylkisdætur eru átta dögum yngri