Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Side 137
Arsnyt árið 1939:
Haesta clagsnvt = 2892 : 15.7 = 184
Arsnyt árið 1959:
Hæsta dagsnyt = 3593 : 20.2 = 178
Aukning ársnytar:
Aukn. hæstu dagsnytar = 701 : 4.5 = 156
Þrátt fyrir það, er hér hefur verið rakið, geri ég ráð fyrir,
að þeir, er af einhverjum ástæðum vilja ekki viðurkenna
árangur kynbóta, telji þessi rök ófullnægjandi, ef ekki er
unnt að renna undir þau enn traustari stoðum, en svo vel
vill til að það er auðvelt.
Haustið 1959 var nautið Skjöldur Reykdal lagður að velli
fjórtán ára gamall. Það hafði verið í eigu S.N.E. frá 1946 og
verið notað mikið á sæðingastöðinni fimm síðustu ár æv-
innar, en verið áður lengstaf úti í félögunum. Dætur Skjald-
ar Reykdals koma fyrst í gagnið 1950, og það ár og hið næsta,
1951, koma 26 dætur hans á skýrslu að 1. kálfi, ogreyndist
hæsta dagsnyt þeirra að meðaltali 13.1 kg, eða rösku kg
meira en meðaltalið var af öllum skýrslufærðum 1. kálfs
kvígum 1949. Þetta er mjög eðlilegur munur. Skj. Reyk-
dal hlaut I. verðlaun 1952 og þá að sjálfsögðu vegna þess,
að dætur hans sýndu nokkra yfirburði yfir meðalmátann.
Árið 1958/59 koma 96 dætur Skj. Reykdals á skýrslur að 1.
kálfi og komast í 13.58 kg hæst að meðaltali, en 1959 er
hæsta dagsnyt af öllum 1. kálfs kvígum á skýrslum 13.81 kg
að meðaltali, eða 0.25 kg meira en meðallag jafngamalla
Skjaldardætra, og er þó munurinn í raun og veru meiri, því
að dætur Skj. Reykdals allflestar eru með í heildarmeðal-
talinu.
Hvað veldur þessu? Væri hækkun meðaltalsins einvörð-
ungu bættri fóðrun, uppeldi og meðferð að þakka, hefði
hún orðið hlutfallsleg, og dætur Skjaldar Reykdals að 1.
kálfi því átt að vera jafnmikið ofan við meðaltalið 1959 eins
og þær voru í upphafi, í stað þess að vera orðnar nokkuð
neðan við það. Á þessu er aðeins ein hugsanleg skýring.