Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Blaðsíða 97
SVEINBJÖRN EGILSSON OG CARL CHRISTIAN RAFN
97
Sveinbjörn Egilsson. — Teikning Rudoljs Keys- Carl Christian Rajn.
ers, er var á íslandi 1825-27 og þá m. a. hjá
Sveinbirni á Bessastöðum.
Fyrsti kaflinn hefst á þessa leið: „Við undirritaðir komum saman 2. janúar 1824
cg ákváðum að stofna ásamt Sveinbirni Egilssyni, kennara við Bessastaðaskóla, fasta-
félag, er hefði í senn að höfuðmarkmiði að skýra og gefa út íslenzk fornrit, en fengj-
ust nógu margir styrktarmenn og þátttakendur, skyldi félagið færa út kvíarnar og
láta norræn fornfræði almennt til sín taka. Ákveðið var, að fyrsta viðfangsefni fé-
lagsins skyldi vera að láta prenta Jómsvíkingasögu eftir uppskrift prófessors Rasks
af skinnbók [varðveitlri] í Stokkhólmi og sagan vera dæmi um það snið og þann
hátt, er hafður yrði á útgáfu hinna íslenzku fornrita. Sýnishorn þetta skyldi senda
væntanlegum áskrifendum að safni íslenzkra Fornmannasagna, er síðan yrði fram-
haldið, en jafnframt skyldi gefa út í latneskri þýðingu með lærðum skýringum og á
dönsku, hvoratveggju þýðinguna í sérstakri útgáfu.“
Næst fara í þessari fundargerð stuttir kaflar, dagsettir 2. febrúar, 1. marz og 3.
apríl. í kaflanum 2. febrúar sjáum vér, að Rafn tekur að sér ritara- og gj aldkerastörf-
in og gerist þannig þegar í öndverðu driffjöðrin í þessu sigurverki. En Rafn vissi
sem var, að án fulltingis íslendinga fengi Hið norræna fornfræðafélag, sem hér var
efnt til af miklum stórhug1, litlu áorkað. Hann leitar því til slíkra manna sem drs.
1 Frá stofnun félagsins var hins vegar formlega gengið 28. janúar 1825, á afmælisdegi konungs.
7