Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Blaðsíða 10
10
LANDSBÓKASAFNIÐ 1967
Fyrsta rit í þessum flokki, er nefndur var íslenzk rit í frumgerð, kom út í nóvember-
mánuði (1967) og var, sem kunnugt er: Nockrer Margfrooder Sdguþætler Islendinga,
er út komu á Hólum í Hjaltadal 1756.
Ólafur Páhnason bókavörður samdi inngang, sem jafnframt var birtur í útdrætti í
enskri þýðingu Gunnars Norlands menntaskólakennara.
Annað bindi í flokkinum kom út í júnímánuði sl., Brevis commentarius de Islandia
eftir Arngrím lærða, prentaður í Kaupmannahöfn 1593. En á þessu ári (1968) eru
fjórar aldir liðnar frá fæðingu Arngríms.
Dr. Jakob Benediktsson ritaði formála, og fylgir honum útdráttur í enskri þýðingu
Gunnars Norlands.
Vér teljum, að mjög þarft verk hafi verið unnið með útgáfu þessara tveggja rita.
Þau eru hvort á sinn hátt merkir áfangar, rit Arngríms upphaf rithöfundarferils hans
og Margfróðir söguþættir fyrsta prentun svokallaðra íslendinga sagna.
ENDURBÆTUR Aí endurbótum, sem unnið var að á árinu, skal einkum nefna
ný og vönduð fatahengi í anddyri, afgreiðsluborð með hentug-
um hólfum undir töskur og annað, sem gestir þurfa að láta geyma fyrir sig, áður en
þeir fara inn í lestrarsali safnanna; ennfremur þrjú sýningarborð, er komið var fyrir
í sunnanverðu anddyri og þegar hafa verið notuð mikið. En mjög hefur til þessa
skort aðstöðu til sýningarhalds í húsinu.
Gunnar Magnússon húsgagnaarkitekt teiknaði innréttingar þær, sem lýst hefur ver-
ið, en Dvergur h.f. í Hafnarfirði annaðist smíði þeirra.
HEIMSÓKN FJÁR- Fjárveitinganefnd alþingis heimsótti Landsbókasafn á árinu,
VEITINGANEFNDAR kynnti sér störf þess og starfsskilyrði.
ALÞINGIS Vér þökkum nefndinni komuna og góða samvinnu, sem vér
höfum við hana átt á undanförnum árum.
ÁRBÓK Ætlunin er, að þetta hefti Arbókarinnar komí út um það bil,
sem Landsbókasafnið verður 150 ára, 28. ágúst 1968. Eru grein-
ar þess valdar að nokkru með hliðsjón af því og eru allar eftir starfsmenn safnsins.
Frá afmæli Landsbókasafns og því, sem gert hefur verið og gera skal síðar á ár-
inu í minningu þess, verður skýrt í næsta hefti Árbókarinnar.
Landsbókasafni, 1. júlí 1968.
Finnbogi Guðmundsson