Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 15
FLORA DANICA Á ÍSLANDI
15
anna, og er sú afstaða lítt skiljanleg, enda hefur honum ekki reynzt
stætt á henni, eins og ráða rná af ofangreindu bréfi til Particulær
Kammeret 19/5 1795. En Sveini hefur sárnað framkoma stiftamt-
manns og gefur honum allmeinyrta ábendingu um, hver sé tilgangur-
inn með tilvist þessara lánseintaka jafnt hér sem annars staðar í ríki
Danakonungs. Niðurstaða ofanskráðra heimilda verður, að eintak No
39 var ætlað Bessastöðum, No 40 Skálholtsstifti, No 41 landlæknis-
embættinu og No 42 Hólastifti.
Til að geta áttað sig á ferli þessara íjögurra eintaka hérlendis er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir tilurð og tilhögun útgáfu þessa
mikla plöntumynda bókverks. Það kom út á árunum 1761—1883 í 51
hefti (Fasciculus), hvert með 60 myndatöílum, og voru 3 hefti í bindi
eða alls 17 bd. með 3060 töflurn, auk eins aukabindis, Supplementum
Floræ Danicæ, með 180 töflum, sem kom í 3 heftum, árin 1854, 1866
og 1874. Samtals 54 hefti með 3240 myndatöflum. (Um frekari
lýsingu á verkinu, einkum grasafræðilegu gildi þess, skal vísað til Carl
Christensen: Den Danske Botaniks Historie. Kh. 1924—26. Þar er þó
ekki getið hinna gegnumdregnu númeruðu eintaka.) Það mun
vafalítið, að Georg Christian Oeder (1728—91) hafi átt hugmyndina
að því. Hann var þýzkur læknir, sem hafði lokið doktorsprófi í
Göttingen 1749, undir handleiðslu hins víðfræga Albrechts von
Haller (1708-77). Johan Hartvig Ernst Bernstorf utanríkisráðherra
(1712—72) og Adam Gottlob Moltke greifi (1710—92), sem þá voru
hvað mestir ráðamenn með konungi, hlutuðust til um, að Oeder væri
kallaður til Kaupmannahafnar 1752 til að verða prófessor í grasa-
fræði og umsjónarmaður nýstofnaðs grasagarðs konungs við Ama-
liegötu, sem var rekinn af hinni konunglegu grasafræðistofnun, er
Moltke greifi veitti forstöðu, en var háskólanum óviðkomandi.
Háskólaráð og einkum Balthazar J. de Buchwald (1697-1763)
prófessor í læknisfræði voru andvígir því að fá sérstakan prófessor í
grasafræði, og þar sem Oeder hafði erlent læknapróf, varð hann að
disputera við Hafnarháskóla til að verða gjaldgengur þar. Sú
doktorsvörn varð æði söguleg, og skal það ekki rakið hér. Það tafði
fyrir, að Oeder yrði gerður að prófessor þegar í stað, en það varð
hann 1754 þrátt fyrir andstöðu háskólans. Jafnframt var Oeder
styrktur til árlegra grasafræðileiðangra til Noregs og víðar um
Danaveldi á árunum 1755-60, og var þá í för með honum teiknarinn
Martin Rösler, en faðir hans Michael Rösler gerði eirstungur af
myndum sonarins fyrir Flóruna (Molbech, C.: Det Kongelige Danske