Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 81
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
81
hluti þess, en málun þaks og
fullnaðarmálun glugga látin
bíða um sinn.
A árinu var sett handrið á
útitröppur Safnahússins, og
var um þá framkvæmd leitað
heimildar húsafriðunarnefnd-
ar. En Safnahúsið er í A-
flokki friðaðra húsa og því til
þess ætlazt, að engar slíkar
breytingar séu gerðar án vit-
undar og samþykkis hinnar
opinberu húsafriðunarnefnd-
ar.
Þorsteinn Gunnarsson arki-
tekt teiknaði handriðið, er síð-
an var smíðað í Vélsmiðjunni
Kletti í Hafnarfirði. Eins og
sjá má, er þess gætt, að hand-
riðið sé sem einfaldast, en
þjóni þó vel hlutverki sínu.
Það leysir samt ekki vanda
þeirra, sem t. a. m. eru í hjólastól. Þeir verða að hafa fylgd, en séu
þeir komnir inn í anddyri, er þaðan greið leið inn í lestrarsal
handritadeildar á 1. hæð, þangað sem færa má þeim efni úr báðum
söfnum, Landsbókasafni og Þjóðskjalasafni.
Þar sem vatn og veður höíðu unnið nokkuð á útitröppum
Safnahússins, voru múrarar fengnir til að yfirfara þær, hreinsa úr
raufum og fylla þær að nýju, festa hellur, sem orðnar voru lausar,
o. s. frv.
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA Vegna erfiðrar tíðar tókst ekki að ljúka
uppsteypu bókhlöðunnar á árinu 1981,
svo sem til stóð, og varð þeim áfanga því ekki lokið fyrr en halla tók
vetri.
Næsti áfangi, þaksmíðin, var síðan boðin út og tilboð opnuð 23.
marz, jafnframt því sem stofnað var til kaupa á álþakplötum, er
6