Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 68
68
BRÉF WILLARDS FISKES TIL ÍSLENDINGA
garðrækt? Hverjar eru nokkrar helztu og fallegustu jurtir eða villiblóm? Hverjir eru
algengustu sjúkdómarnir? Gætir nú nokkurs skyrbjúgs?
Þetta er ekki til lítils mælzt, en ég ætlast ekki til, að þér farið að svara þessum óteljandi
spurningum eða öllum í einni atrennu. Detti yður citthvað í hug, sem þarna er ekki minnzt á,
einhver staðreynd, siður, atvik, þjóðsaga - þætti mér vænt um að frétta af því, og eins langar
mig að vita, hvað yður sýnist um kort dr. Thoroddsens og hvort nokkurt ranghermi sé í grein
hans.
Vinsamlegast látið mig vita, hvernig taflborðin og taflmennirnir, er sendir voru til
eyjarinnar, hafa enzt. Eru þeir flestir illa farnir? Hvaða skákrit finnast yður gagnlegust? Fá allir
skilið og notað dæmasöfn og skákþrautir á þýzku? Hefur fólk haft mikinn áhuga á mynda-
bókunum, sem sendar voru? Ég er feginn, hve afbragðs vel þér eruð að yður í ensku. Eru aðrir á
eynni, er kunna eitthvað í henni eða öðrum erlendum málum auk dönsku? Hve margir skilja
dönsku? Koma enskir, franskir eða amerískir fiskimenn nokkurn tíma til eyjarinnar? En nú er
ég farinn að hlýða yður yfir aftur.
Ég bið yður fyrir beztu kveðjur til allrar fjölskyldunnar og einkum til nafna míns, sem ég
vona, að dafni vel. Ég sendi Ingvari beztu óskir og öllum vinsemdar kveðjur.
Yðar einlægur
Willard Fiske.
Ég á jafnhægt með að lesa íslenzku og ensku, svo að þér getið svarað á íslenzku öllum þeim
spurningum, sem þér kunnið að vilja sinna. En þér megið ekki hafa allt of mikið fyrir þessu.