Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 73
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
73
Heimir Þorleifsson menntaskólakennari afhenti frá Menntaskólan-
um í Reykjavík nokkur gögn Framtíðarinnar til viðbótar margvísleg-
um gögnum félagsins, er áður voru komin í vörzlu Landsbókasafns-
ins. Þau gögn, sem nú bættust við, eru: Gerðabók Framtíðarinnar 12.
janúar 1919-12. nóvember 1921. — „Hulda“, ljóðabók Framtíðar-
innar 1913-1918 og 1919-1921.
Sr. Gísli Brynjólfsson afhenti ýmis bréf til Sigríðar Eiríksdóttur
prestsfrúar á Auðkúlu, ömmu gefanda.
Horæ successivæ eður Spare-Tímar eftir Joseph Heusham, með
hendi sr. Björns Hjálmarssonar og líklega þýddir af honum. - Rímur
af Lijkafron og hans fylgjurum, kveðnar af Daða Níelssyni. Anno
1831. Bæði handritin gjöf systkinanna Valdísar og Sigríðar (í
Búðardal), Sigurrósar Guðbjargar (á Hólmavík) og Benedikts (í
Reykjavík) Þórðarbarna.
Brot úr lækningakveri í 4to. Með hendi Jóns Guðmundssonar
hómópata á Hellu í Steingrímsfirði. Gjöf hjónanna Magnúsar
Jörundssonar og Arnýjar Rósmundsdóttur á Hellu. Blöðin eru komin
frá Þorbjörgu Hjaltadóttur, ráðskonu Ingimundar hreppstjóra á
Hellu, en Jörundur faðir Magnúsar var fóstursonur Ingimundar.
Safn af úrklippum, er varða Nóbelsverðlaun Halldórs Guðjóns-
sonar frá Laxnesi. Dr. Jón Helgason í Kaupmannahöfn sendi að gjöf.
Margrét Sigfúsdóttir: Systkinin frá Víðivallagerði (uppi á 17. öld),
kvæði. Guðbjörg Þorsteinsdóttir, systurdóttir Margrétar, afhenti í
ljósriti.
Þrjú leikrit Tómasar Jónassonar á Hróarstöðum í Fnjóskadal í
eiginhandarriti hans: Ebenezer. - Vinirnir. - Yíirdómarinn. — Ólafur
Magnússon, seinast gjaldkeri Háskóla íslands, afhenti að gjöf úr
dánarbúi systur sinnar, Sigrúnar Magnúsdóttur, samkvæmt ósk
hennar. Handritin eru komin úr fórum Bjargar, ekkju Tómasar, um
hendur Helgu dóttur þeirra, móður gefanda.
Ólafur Magnússon afhenti jafnframt í ljósriti leikritið Halli, skrifað
af Magnúsi Ólafssyni prentara á ísafirði, föður gefanda, og Jónasi
Tómassyni tónskáldi, mági Magnúsar. Ólafur afhenti í þriðja lagi
handrit Jóns frá Ljárskógum að „Hörpuljóðum“.
Baldvin Halldórsson færði safninu frá Halldóri Laxness fundar-
gerðabók undirbúningsnefndar stofnunar Þjóðleikhúss, sem Halldór
var skipaður í ásamt íleirum af menntamálaráðuneytinu 19. febrúar
1945.