Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 82
82
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
framleiða skyldi í Þýzkalandi. Hefði mátt ætla, að unnt yrði að koma
þakinu á um sumarið, en það fór á annan veg. Fyrirtæki það,
Hólaberg sf, er verkið hlaut, fékk ekki hafið þaksmíðina fyrr en síðla
sumars, og dráttur varð á, að þakplöturnar bærust til landsins. Varð
því látið við það sitja að slá upp sjálfri þakgrindinni, en bíða síðan
betra veðurs og færis að koma sjálfum þakplötunum á.
Eins og ráðið verður t. a. m. af teikningum og líkani Þjóðarbók-
hlöðu, var allt frá öndverðu gert ráð fyrir, að 3. og 4. hæð
bókhlöðunnar yrðu klæddar sérsmíðuðum álskjöldum, er mynduðu
jafnframt umgerð um glugga þessara hæða. Skildir þessir eru japönsk
uppfynding, en þar sem Alusuisse hafði einkaleyfi á henni í Vestur-
Evrópu, höfðu arkitektar bókhlöðunnar samráð við svissneska tækni-
menn um hönnun þessa þáttar.
Vitað var, að hér yrði að kosta þó nokkru til, en \ móti kæmi, að
þessi lausn væri í senn traust og vönduð og setti jafnframt mikinn svip
á bygginguna, þar sem brenndur yrði í skildina rauður litur, er
myndaði skarpa andstæðu við hinn gráa múr turnanna og fyrstu
hæðar.
Þegar tilboð barst í smíði skjalda og fylgihluta þeirra í júnímánuði
1981, ljúka skyldi nauðsynlegum viðbúnaði og festa kaup á þeim,
óskaði samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir, að þessi lausn
yrði könnuð nánara. Að lokinni þeirri könnun og fenginni umsögn
Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins um ýmis tæknileg atriði
málsins lauk nefndin greinargerð sinni til fjármálaráðherra 25.
september 1981 með svofelldum orðum: „Að því tilskildu, að
stjórnvöld fallist á kostnaðinn við margrædda lausn, telur samstarfs-
nefnd um opinberar framkvæmdir eftir atvikum ekki rétt að mæla á
móti framhaldi verksins, eins og til hefur verið stofnað.“
Nokkru fyrir jól kom fulltúi Alusuisse hingað til lands til viðræðna
um álklæðninguna, og leiddi það snemma á árinu 1982 til þess, að
aflað var nýrra tilboða í smíði álskjaldanna. Þau bárust seint í janúar
og höfðu hækkað þá svo frá tilboðinu í júní 1981, að ekki þótti fært að
taka neinu þeirra. Var arkitektum bókhlöðunnar þá falið að kanna
aðra hugsanlega lausn, og var sú könnun vel á veg komin, þegar nýtt
tilboð, dagsett 8. apríl 1982, barst fyrir meðalgöngu Alusuisse í smíði
álskjaldanna. Var það franskt tilboð og reyndist ekki nema 5,2%
hærra en frumtilboðið frá í júní árinu áður.
Var nú lagt til, að hinu nýja tilboði yrði tekið, enda bentu
athuganir á annarri lausn þá ekki til, að hún yrði ódýrari. Gengið var