Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 82

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 82
82 LANDSBÓKASAFNIÐ 1982 framleiða skyldi í Þýzkalandi. Hefði mátt ætla, að unnt yrði að koma þakinu á um sumarið, en það fór á annan veg. Fyrirtæki það, Hólaberg sf, er verkið hlaut, fékk ekki hafið þaksmíðina fyrr en síðla sumars, og dráttur varð á, að þakplöturnar bærust til landsins. Varð því látið við það sitja að slá upp sjálfri þakgrindinni, en bíða síðan betra veðurs og færis að koma sjálfum þakplötunum á. Eins og ráðið verður t. a. m. af teikningum og líkani Þjóðarbók- hlöðu, var allt frá öndverðu gert ráð fyrir, að 3. og 4. hæð bókhlöðunnar yrðu klæddar sérsmíðuðum álskjöldum, er mynduðu jafnframt umgerð um glugga þessara hæða. Skildir þessir eru japönsk uppfynding, en þar sem Alusuisse hafði einkaleyfi á henni í Vestur- Evrópu, höfðu arkitektar bókhlöðunnar samráð við svissneska tækni- menn um hönnun þessa þáttar. Vitað var, að hér yrði að kosta þó nokkru til, en \ móti kæmi, að þessi lausn væri í senn traust og vönduð og setti jafnframt mikinn svip á bygginguna, þar sem brenndur yrði í skildina rauður litur, er myndaði skarpa andstæðu við hinn gráa múr turnanna og fyrstu hæðar. Þegar tilboð barst í smíði skjalda og fylgihluta þeirra í júnímánuði 1981, ljúka skyldi nauðsynlegum viðbúnaði og festa kaup á þeim, óskaði samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir, að þessi lausn yrði könnuð nánara. Að lokinni þeirri könnun og fenginni umsögn Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins um ýmis tæknileg atriði málsins lauk nefndin greinargerð sinni til fjármálaráðherra 25. september 1981 með svofelldum orðum: „Að því tilskildu, að stjórnvöld fallist á kostnaðinn við margrædda lausn, telur samstarfs- nefnd um opinberar framkvæmdir eftir atvikum ekki rétt að mæla á móti framhaldi verksins, eins og til hefur verið stofnað.“ Nokkru fyrir jól kom fulltúi Alusuisse hingað til lands til viðræðna um álklæðninguna, og leiddi það snemma á árinu 1982 til þess, að aflað var nýrra tilboða í smíði álskjaldanna. Þau bárust seint í janúar og höfðu hækkað þá svo frá tilboðinu í júní 1981, að ekki þótti fært að taka neinu þeirra. Var arkitektum bókhlöðunnar þá falið að kanna aðra hugsanlega lausn, og var sú könnun vel á veg komin, þegar nýtt tilboð, dagsett 8. apríl 1982, barst fyrir meðalgöngu Alusuisse í smíði álskjaldanna. Var það franskt tilboð og reyndist ekki nema 5,2% hærra en frumtilboðið frá í júní árinu áður. Var nú lagt til, að hinu nýja tilboði yrði tekið, enda bentu athuganir á annarri lausn þá ekki til, að hún yrði ódýrari. Gengið var

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.