Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 19

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Side 19
FLORA DANICA Á ÍSLANDI 19 öllum eintökunum. En þegar athugað er, hvernig ritað er í eyður forblaðs eintakanna, verður ljóst, að þegar í upphafi hafi getað orðið ruglingur á dvalarstað þeirra. Þar stendur í Skálholts eintakinu: No 40. En Person av civil Stand paa Island og síðan civil — Island — Stift- amtman (hið skáletraða er skrifað), og þannig í 1.-3. hefti, í 4.-6. hefti: 40. En Person af Geistlig Stand i Island — geistlig — Island — Biskop, í 7,- 10. hefti: 40. (aðeins) — Geistlig — Skalholdt (svo) — Biskop, í 11. hefti: 40 for en Person af Geistlig Stand í Island — geistlig — Island — Stiftamtmand (svo), í 12.-17. hefti eins og í 11. hefti nema síðast Biskup. í Hólaeintakinu stendur: No 42. En Person av Geistlig Stand paa Island — Geistlig — paa Island — Biskop, þannig í 1.-6. hefti, í 7.-10. hefti: 42. En Person af Geistlig Stand i Island — Geistlig — Hóla — Biskop, í 11. —17. hefti eins og 7,—10. hefti, nema ísland í stað Hóla. Þessi síðasta tilhögun áritunar helzt síðan áfram. Það verður sem sé ekki séð af áritunum í heftin, hvar þau eiga heima, nema í 7.-10. hefti, þó að telja megi víst, að frá upphaíi hafi verið ákveðið, í hvers vörzlu hvert hinna númeruðu eintaka Flórunnar ætti að vera. Fyrstu 6 heftin komu út á árunum 1761-67, og eru eintökin No 40 og 42 dagsett sama dag útgáfuárið eða árinu síðar og A. Moltke undirritar þau, en í 7.—10. hefti, sem koma út 1768—1771, eru öll hefti beggja eintaka dagsett den 16de Julii 1772, en óundirrituð. Mér er ókunnugt um orsök þessarar óreglu, en hafa má í huga, að á þessum árum urðu talsverðar sviptingar innan æðstu stjórnar ríkisins. Friðrik V deyr 1766, en við konungdómi tekur Kristján VII, og með honum komast nýir menn til valda, einkum Jóhann Friedrich Struensee (1737-72), sem á árunum 1770 og 1771 má heita einráður um stjórn ríkisins. Hann gerir Oeder að finansráði í ársbyrjun 1771, en við útgáfu Flora Danica tekur náttúrufræðingurinn Otto Frederik Múller (1730-84), sem gefur út 11.-15. hefti hennar (1775-82), Den kongelige botaniske Anstalt er lögð niður. Um dagsetningu 7—10. heftis Flórunnar, sem til íslands fóru, þykir mér líklegt, að þar komi Jón læknir Pétursson við sögu. Til þess bendir eftirfarandi heimild úr almanaksdagbók Sveins Pálssonar (ÍB. 2-4 8vo) árið 1798: October 23. og 24. Registrfera] Naturalier Apoth[ekara] - og í framhaldi af því fylgir neðanmáls listi yfir um 73 plöntur, sem ber heitið „Ex Herb[ario] chir[urgi] J[óns] P[éturssonar]“. Um aðeins eina plöntu er þess getið, hvenær hún sé fundin, nefnilega: Euphorbia heliosc[o- pia] lectu inter Olea Vidoeensium 1774 (fundin innan um kál í Viðey 1774). En allmargra fundarstaða er getið, Tröllaháls, Lundeyjar,

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.