Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 30

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 30
30 BRÉF WILLARDS FISKES Willard Fiske var með fremstu skákmönnum síns heimalands og mikill rithöfundur á því sviði. Alkunna er starf hans fyrir skáklistina hérlendis. Hann var mjög ötull styrktarmaður Taflfélags Reykjavík- ur, sendi því skákborð og taflmenn. Tímaritið í uppnámi gaf hann út í tvö ár með aðstoð íslendinga, 1901 og 1902, árganginn 1902 sá Halldór Hermannsson um. Mjög lítill skákbeklingur kom líka út 1901, saminn af Fiske. Þetta er upphafið að íslenzkum skákbókmenntum. Á þessum árum 1901 og 1902 voru stofnuð ein tíu skákfélög utan Reykjavíkur, en sum þeirra urðu ekki langlíf. Fiske gaf Landsbóka- safni íslands safn sitt af skákbókum, sbr. Skrá um erlend skákrit í Landsbókasafni íslands, Reykjavík 1968. Þar er Skákritagjöf Willards Fiskes og Skrá um skákrit og smáprent um skák er Willard Fiske lét prenta á íslenzku og gaf Taflfélagi Reykjavíkur. Þegar Fiske lézt, 17. september 1904, var hann að semja ritið „Chess in Iceland and in Icelandic literature with historical notes on other tablegames“. Ritið átti að verða tvö bindi, og luku Horatio S. White, George W. Harris og Halldór Hermannsson við fyrra bindið, sem kom út 1905. Þá er ótalið starf Fiskes fyrir Grímseyinga. Orð fór af þeim sem skákmönnum, og sendi hann hverju heimili í Grímsey skáktafl. Ennfremur stofnaði hann til bókasafns þar, Eyjarbókasafnsins, og gaf til bækur. Þá stofnaði hann sjóð, 44.000 kr., og skyldi vöxtunum varið Grímsey til viðreisnar. Eins og sjá má af bréfunum hér á eftir, urðu fleiri söfn á landinu aðnjótandi gjafa Fiskes. Kona Fiskes, Jennie McGraw, var einkadóttir auðugs kaupsýslu- manns, sem var einn af fjárhaldsmönnum Cornell háskóla. Sá arfur sem Fiske tæmdist við dauða hennar gerði honum kleift að stunda bókasöfnun. Auk nokkurra sérsafna, Petrarcasafnsins, Dantesafnsins o. fl., er íslenzka safnið, sem áður getur. Fiske lagði því til fé, svo að framhald yrði á söfnuninni, og til útgáfu ársrits um íslenzk efni. Þau eru nú orðin 43. Ennfremur lagði hann til, að við safnið skyldi starfa íslenzkur maður fæddur og uppalinn á íslandi. Þessi sérsöfn ánafnaði hann Cornell háskóla og mestan hlut eigna sinna. Aðrar bækur sínar gaf hann Landsbókasafni íslands. Og hann lét ekki hér við sitja, hann gaf einnig listaverk til landsins. Fiske var talinn manna bezt að sér í íslenzkri bókfræði sinna samtíðarmanna erlendra sem íslenzkra, og er verk hans Bibliographical Notices, um bækur prentaðar á íslandi á árunum 1578-1844, einmitt gott dæmi um það. „Það er nokkuð þótt lítið sé, sem einstakur maður getur komið til

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.