Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Page 58
58
BRÉF WILLARDS FISKES
Til síra Matthíasar Eggertssonar í Grímsey
Kjöbenhavn, 4 Sept. 1901
Kære síra Matthías,
Jeg skriver Dem et Par Ord paa dansk, fordi at det er letter for mig
end at skrive islandsk.
Det vil være god af Dem hvis De vil tillade en Amerikaner at foroge
lidt Deres aarlige Gage som Præst paa Grimsey. Jeg sender Dem
hermed hundred Kroner, og haaber at gore det samme saa længe jeg
lever og De bliver á Miðgorðum.
Högaktningsfullt,
Willard Fiske.
Nationalbanken i Kjobenhavn 100, nr. 2382393. (1897)
p.t. Kaupmannahöfn 5. sept. 1901.
Kæri síra Matthías,
Mér til mikillar ánægju hef eg fengið bréf frá yður ásamt lýsingu á
Grímsey og manntali, og þakka eg yður kærlega fyrir það allt.
Jafnskjótt og eg get fengið nokkrar ljósmyndir frá Grímsey, sjávar-
hömrum hennar, ströndum, bæjum o. s. frv., hef eg í hyggju að gefa
út lýsingu á þessu einkennilega og merkilega heimkynni ykkar. Eg
haíði von um, að enski ferðamaðurinn, Howell,1 mundi fara til
Grímseyjar í sumar til þess að taka þar myndir, en til allrar
óhamingju drukknaði hann fyrir skömmu í Héraðsvötnunum, og
missti ísland þar góðan vin og velunnara.
Með fyrstu skipum, er ganga til íslands næsta sumar, vonast eg til
að geta sent nokkrar íleiri bækur til Eyjarbókasafnsins. Ef það væru
einhverjar bækur, sem væru yður sjálfum eða bókasafninu nytsamar,
þá gjörið svo vel og látið mig vita það og gefið mér titil þeirra.
Ennfremur æski eg þess, að þér létuð mig vita, ef það væri eitthvað
annað, sem eg gæti gjört fyrir eyjuna og íbúa hennar.
Gjörið svo vel og berið hra Ingvari Guðmundssyni kæra kveðju
mína, með þakklæti fyrir hans góða bréf, er eg mun svara áður langt
um líður.
1 F. W. W. Howell drukknaði 3. júlí 1901. Nokkrar ágætar ljósmyndir eftir hann eru
varðveittar í Landsbókasafni. Myndirnar eru héðan og þaðan af landinu. Bók Howells um
ferðalög hans hérlendis: lcelandic Pictures Drawn with Pen and Pencil - kom út í London
1893.