Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1944, Side 5

Frjáls verslun - 01.05.1944, Side 5
Hluti mannfjöldans í Fánabrekku 17. júní. undir þungbúnum himni, réðist í það að stofna sjálfstætt ríki, hið minnsta í heimi, á sama tíma og mestur hluti jarðarinnar skelfur af hergný og logar af heift og hatri. Og margur mun hafa óskað að andi hinna beztu Islend- inga, allt frá Ingólfi og Úlfljóti til Jóns Sig- urðssonar og Hannesar Hafsteins, mætti halda verndarhendi yfir þessum nýgræðingi í samfé- lagi þjóðanna. IV. Þegar lýðveldisstjórnarskráin hafði gengið í gildi, kaus Alþingi forseta íslands. Sveinn Björnsson, ríkisstjóri, var kosinn forseti til eins árs. Hinn nýkjörni forseti íslands vann eið að stjórnarskránni, og flutti síðan ræðu. Þá fluttu sendimenn erlendra ríkja ávörp og kveðj- ur, en með því lauk þessum hluta hátíðahald- anna. Síðar um daginn hófst nýr þáttur hátíð- arinnar á „Völlunum“ svonefndu. Þar fluttu ræður Alexander Jóhannesson, próf., formað- ur þjóðhátíðarnefndar, prófessor Richard Beck, FRJÁLS VERZLUN forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vestur- heimi, fulltrúi Vestur-fslendinga í boði ríkis- stjórnarinnar á hátíðinni, og Benedikt Sveins- son, fyrrverandi alþingismaður og forseti neðri deildar Alþingis. Brynjólfur Jóhannesson, leik- ari, flutti hátíðarljóð Huldu, en Jóhannes úr Kötlum hátíðarljóð sitt. Þjóðhátíðarkór Sam- bands íslenzkra karlakóra söng, Pétur Jónsson söng einsöng, lúðrasveit lék og Þjóðkórinn söng. Þá voru og fimleikasýningar, en vegna veðurs þó ekki eins og til var ætlast. Síðari hluta dags tók mannfjöldinn að dreifast og fækka, og er líða tók að óttu, var umferð orðin lítil, og Öxar- árfoss farinn að slá hörpu sína, einráður í ríki hinnar kyrrlátu júnínáttar. V. Hátíðahöldin héldu áfram í Reykjavík, og raunar víða um land, hinn 18. júní. Veðrið var mun léttara en daginn áður. Var og annar blær yfir hátíðahöldunum síðari daginn, án þess þó að veðrið ætti þar verulegan hlut að máli.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.