Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 7
Börn í hópíjöngunni 18. júní. menn virðast þannig gerðir, að mega aldrei sjá bikar gleði og ánægju í annars hönd, án þess að reyna að blanda hann galli. Er þetta mann- legur breyskleiki og verður umborinn. Hitt er verra þegar þeir, sem almenningsálitið skapa, skrifa og tala að óathuguðu máli og beinlínis villandi. Þessa mun hafa orðið vart og er leitt til þess að vita. Það er andi Sturlungaaldarinn- ar, sem þarna er á ferð í nýjum klæðum, andi sem því miður hefur þegar birzt í ýmsum mynd- um, og, að því er virðist, tekið sér fastan sess í íslenzku þjóðlífi. Það er alveg ástæðulaust og ósæmilegt að ata sauri þau hátíðarklæði, sem íslenzka þjóðin bar dagana 17. og 18. júní 1944, og nú eru orðin eign sögunnar. VII. Þjóðhátíðarnefnd lýðveldisstofnunarinnar á- kvað að koma upp í Reykjavík sýningu úr frelsis- og menningarbaráttu Islendinga. Sýn- ingin var höfð í Menntaskólanum og var hin merkilegasta, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á því, að koma henni á laggirnar og skamman undirbúningstíma. Sýningunni var ætlað að bregða upp mynd- um úr sögu Islendinga frá upphafi, en ekki var um neina samfelda sögu að ræða, enda var ekki svo til ætlast. Sýningunni var skipt í 9 hluta eða tímabil og var hvert tímabil í sérstöku herbergi. Voru sýndar myndir, uppdrættir, bækur og munir. Fyrsti þátturinn fjallaði um byggingu Is- lands og upphaf allsherjarríkis, en sá síðasti um sjálfsforræði. Því herbergi var ætlað að sýna nokkrar þeirra breytinga, sem orðið hafa á íslandi síðastliðna sjö áratugi, eða frá því að íslendingar fóru að eiga með sig sjálfir, árið 1874. Það lætur að líkum, að víxlsporin hafa Is- lendingar stigið mörg, síðan þeir fóru að hafa vald á innanlandsmálefnum sínum. En heild- arniðurstaðan verður sú, þegar á allt er litið. að Islendingar hafi hlaupið frá miðaldar- ástandi til nútíðarmenningar á sjö tugum ára, og eru stakkaskipti þau sem þjóðlíf Islendinga tekur á þessum skamma tíma nær ótrúleg. Þótt sýningu þessari væri af eðlilegum á- stæðum áfátt um ýmislegt, þá var hún at- hyglisverð og lærdómsrík í heild. Hún sýndi ljóslega að menning og framfarir dafna í skjóli frelsis, bæði þess frelsis, sem leysir undan oki, og þess, sem leyfir framtak og leið- ir til athafna. Verzlunarmenn 18. jún í 17. júní er gamall afmælisdagur. Á þeim degi árið 1811 fæddist sá maður, sem borið hefir ægishjálm yfir önnur afbragðsmenni þjóðarinnar þótt því megi ekki gleyma að starf þessa manns var byggt á hugmyndum og starfi margra annara. En þótt 17. júní sé gamall dag- ur þá verður hann hér eftir alltaf nýr — alltaf merkisdagur, alltaf gleðidagur, alltaf minning- ardagur. FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.