Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 33
Oscar R. Hobson: Endurreisn eftir stríð Þar sem mér er um geð að telja lcjúklingana, áður en þeir lcoma úr eggjunum, finn ég mig haldinn nokkurri tregðu til þess að ræða endur- reisn eftir stríð eins og sakir standa. Þessi tregða er vafalaust ekki á réttum stað, því að þegar öllu er á botninn hvolft — þó að það sé satt, að við munum ráða litlu eða engu um þetta mál. Ef við töpum styrjöldinni — þá fer endurreisnin óhjákvæmilega í handaskolum, nema við hugsum og tölum um hana, áður en við sigrum. Svo að ég hefi í hyggju að vinna bug á tregðu minni að því leyti að taka til íhug- unar hér eitt eða tvö atriði almenns eðlis um þetta efni. Fyrst er spurningin um ríkiseftirlit gegn frjálsu framtaki eða samhyggju gegn einstak- lingshyggju. Það er fullljóst og viðurkennt, að á vissum sviðum verður víðtækt opinbert eftirlit að halda áfram um alllangt skeið eftir stríðið. Það verður að halda áfram, umfram allt vegna hinna miklu skemmda, sem borgir okkar og iðjuver hafa orðið fyrir, og vegna takmarkana á fáanlegu vinnuafli og efni til þess að bæta tjónið. Á því er enginn vafi, að almennt verður þess krafizt, að þessi efnislega endurreisn verði skipulögð og henni stjórnað samkvæmt því, en einkaframtak og gróðabrall fái ekki að leika lausum hala á þessu sviði. Þó er önnur ástæða, sem veldur því, að tíma- bil með fastara eftirliti en við eigum að venjast á friðartímum, verður nauðsynlegt eftir stríð, nefnilega vangeta núverandi aðferða til þess að útvega fé til reksturs styrjaldarinnar. Skatt- lagning er ekki framkvæmd með hæfilegum hætti og ekki útvegaðar nægar fjárhæðir með frjálsum innanlands styrjaldarlánum, en í þess stað eru tekin stórlán hjá bönkum. Þetta þýðir, að almenningur situr uppi með fé, sem hefði átt að taka til styrjaldarþarfa. Ennþá hefir þetta 20 hundrað punda seðlum og hafði í brjóstvas- anum. Um leið og ég kvaddi umboðsmann minn á járnbrautarstöðinni í Edinborg, stakk hann að mér marghleypu og vildi ekki annað heyra, en að ég hefði hana mér til öryggis. Ég lét það gott heita. Og nú er haldið til London. Skipstjórinn á „Scandinavia“, Pell að nafni, kom til móts við mig á járnbrautarstöðina. Um leið og skrifstofurnar voru opnaðar hjá Duus og Brown, náði ég tali af aðalforstjóranum. Skýrði ég nú fyrir honum hversu alvarlegt mál það væri, að láta 3000—4000 fjár bíða von úr viti uppi á íslandi og horast niður. Spurði ég hann síðan, hvort hann vildi ekki selja mér það, sem eftir væri af timburfarminum. Hann gekk strax inn á það og bætti við: „alveg ágóðalaust“. Síðan var skrifaður reikningur og borgaður samstundis. Skipstjórinn beið mín á fremri skrifstofunni, og ég var talsvert ánægður, þegar ég gat sagt FRJÁLS VERZLUN honum, að honum væri óhætt að leggja af stað síðdegis þennan dag, enda hækkaði líka brúnin á skipstjóranum. Ég setti honum í sjálfsvald, hvort hann færi heldur með skipið til Leith eða Hartlepool, en á þessum tveim töðum var marlc- aður beztur fyrir slíkan farm. Hann vildi heldur fara til Hartlepool, því þar átti skipið heima. Tókst greiðlega að selja timbrið, og vai'ð enginn halli á þessum kaupum. Síðan var ekki beðið boðanna að útbúa skipið til íslandsferðar. Það kom á ákveðnum degi til útskipunarstaðarins, fékk gott veður á heimleið og missti varla nokkra kind. En nú fóru aðrir útgerðarmenn að mínu dæmi og fluttu skipin til annarra hafna. Þar með var verkfallið í London að engu orðið. En þá voru líka verkalýðssamtökin í bernsku. Nú á dögum hefði þetta ekki tekizt.“ (Frh.) 33

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.