Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 6
Frá hópgöngu íþróttamanna að morgni hins 18. júní. Tæplega mundi þó skrúðgangan frá Háskólan- um hafa orðið eins fjölmenn og raun varð á, ef veður hefði ekki verið sæmilegt. Skrúðganga þessi mun lengi í minnum höfð, sem hin lang- stærsta er nokkru sinni hefur sézt hér á landi. Farið var yfir Tjarnarbrú, Fríkirkjuveg, Lækj- argötu, Skólabrú, Kirkjustræti, Aðalstræti, Austurstræti og staðnæmst á Lækjartorgi og á blettinum framan við Stjórnarráðshúsið. Þegar fremstu hlutar fylkingarinnar, lögregla, börn og skátar, voru komnir að Stjórnarráðshúsinu, voru þeir síðustu ekki komnir yfir Tjarnar- brúna. Lækjartorg fylltist alveg af fólki og sömuleiðis þeir hlutar Lækjargötu, Austur- strætis, Hafnarstrætis, Kalkofnsvegar, Hverf- isgötu og Bankastrætis, sem lágu næst Lækjar- torgi. í hópgöngunni tóku þátt menn af öllum stéttum og flokkum. Lögreglumenn voru í far- arbroddi. Þá kom stór hópur barna með ís- lenzka fána, og voru mörg barnanna í þjóð- búningum, eins og sjá ,má af mynd, er fylgir grein þessari. Þá komu skátar, síðan stúdentar og þar næst ýmis stéttarfélög, þ. á. m. verka- lýðsfélög, stéttarfélög sjómanna, iðnaðar- manna, verzlunarmenn og fleiri. Fyrir hverju félagi var borinn sérfáni félagsins, en auk þess voru bornir íslenzkir fánar víða í fylkingunni. Forseti íslands tók kveðju fylkingarinnar af svölum Alþingishússins, en síðar flutti hann ræðu af ræðustóli framan við Stjórnarráðshús- ið. Formenn þingflokkanna, Ólafur Thors, Ey- steinn Jónsson, Einar Olgeirsson og Haraldur Guðmundsson, fluttu ávörp við þetta tækifæri. Flestu af því, sem gerðist, var útvarpað eins og daginn áður, og verður því ekki farið nánar í einstök atriði. Eins og kunnugt er hafa íþróttamenn að 6 undanförnu helgað sér 17. júní ár hvert og staðið fyrir hátíðahöldum þann dag. Að þessu sinni var ekki um það að ræða, en íþrótta- menn lögðu sinn skerf til hátíðahaldanna 17. júní víða um land, m. a. með fimleikasýning- um. I Reykjavík hefir það jafnan verið venja undanfarin ár, að íþróttamenn hafa heiðrað minningu Jóns Sigurðssonar, 17. júní, með þvi að ganga fylktu liði að leiði Jóns og leggja þar blómsveig. Þessi athöfn fór í ár fram að morgni hins 18. júní, er íþróttamenn, með stjórn íþróttasambands íslands, fóru hóp- göngu að leiði Jóns Sigurðssonar, og lagði for- seti I. S. I., Ben. G. Waage, blómsveig á leiðið. Hópganga íþróttamanna var hin glæsileg- asta, og má nokkuð af henni marka þann í - þróttaáhuga, sem ríkir meðal ungra manna og kvenna í höfuðstað landsins. VI. Fregnir af hátíðahöldunum dagana 17. og 18. júní, báru það með sér, að þátttaka í þeim hef- ur verið mjög mikil og almenn hvarvetna þar, er til hefur spui’zt. Hið íslenzka fúllyndi virðist hafa legið í dvala þessa daga, og h'tið hafa borið á þeim þjóðlega sið, að skríða út í skot með Á Lækjartorgi 18. júní. ólund og skætingi um allt og alla. — Hitt er svo annað mál, að tæplega var við því að búast að þessir tveir hátíðisdagar sköpuðu Fróðafrið á íslandi. Enda leið ekki á löngu þar til blöðun- um þótti viðeigandi að fara að deila allharka- lega á ýmislegt í sambandi við hátíðina. Sumir FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.