Frjáls verslun - 01.08.1953, Side 7
Helgi Lojtsson er jæddur og uppulinn í Reykjavík. Stundadi
hann nám í Verzlunarskóla íslands, en þaSan brautskráSist hann
voriS 1940. AS loknu námi vann hann vi'S verzlunarstörf í
Reykjavík í rösklega tvö ár, en gerSist því nœst sjómaSur. Hejur
Helgi nú veriS í siglingum í 11 ár og gerzt œSi víSjörull. í
sumar tók hann sér nokkurra vikna frí og notaSi þá tœkifœriS
til aS skreppa heim til íslands, og var þá útivistin orSin nokkuS
löng, því hingaS hajSi hann ekki komiS í 9l/2 ór. Helgi er nú
2. stýrimaSur á 8 þúsund smálesta vörujlutningaskipi, sem er
eign Isbrandtsen skipajélagsins. Er þaS í stöSugum siglingum
umhverjis hnöttinn, en hver jerS lekur um jjóra mánuSi. I meS-
fylgjandi grein /á lesendur FRJÁLSRAR VERZLUNAR ofur-
litla hugmynd um, hvert leiSir sumra Vérzlunarskólanemendu
liggja ejtir aS skólabckkirnir haja veriS kvaddir.
Gekk í
Vevzlunarskólann
Siglir nii nmliverfis liiiöttiiin
Enda þótt megin þorri þeirra, sem innritast i Verzl-
unarskóla íslands, hafi í liuga að gerast verzlunar-
menn að loknu námi, þá er nú samt staðreyndin sú,
að leiðir margra liggja ekki að skrifborðinu eða búð-
arborðinu, því að hugurinn vill oft leita á önnur mið,
þegar skólavistinni lýkur. Svona var þessu varið með
Helga Loftsson, sem brautskráðist úr Verzlunarskól-
anum vorið 1940. Að vísu stundaði hann verzlunar-
störf um tíma í Reykjavík eftir að prófið var afstað-
ið og reyndi þá bæði afgreiðslustarf í Tóbaksverzlun-
inni London og skrifstofuvinnu hjá Stálsmiðjunni.
Brátt var þó séð bvert bugurinn stefndi, því að í árslok
1942 var Helgi kominn á sjóinn eftir að hafa unnið
nokkurn tíma sem verkamaður í sjálfri smiðjunni. Nú
hefur hann stundað siglingar í rösk tíu ár og siglt um
öll heimsins höf, bæði í stríði og friði. Óhætt má
telja, að Helgi sé orðinn einhver víðförlasti nemand-
inn, sem í Verzlunarskólann hefur komið, enda kann
hann frá ýmsu að segja úr sínu ævintýraríka starfi.
Um miðjan ágúst kom Helgi fljúgandi til Reykja-
víkur frá New York til að eyða hér nokkrum frídög-
um með ætlingjum og vinum. Hafði hann þá ekki
komið hingað til lands í 9y2 ár, og vai útivistin orðin
nokkuð lengri en hann bjóst við í fyrstu. Ritstjóri
FRJÁLSRAR VERZLUNAR hitti Helga að máli
skömmu áður en hann kvaddi fósturjörðina í annað
sinn. Enda þótt hann hefði mörgu að sinna þessa síð-
ustu frídaga sína í Reykjavík, þá brást hann samt vel
við þeim lilmælum að skýra lesendum blaðsins frá
ýmsu, sem á daga hans hefur drifið þau rösk tíu ár,
sem hann hefur stundað sjómennsku.
Olía fyrir Duke of York.
Þegar Helgi hætti í Stálsmiðjunni i árslok 1942 réðst
hann sem kyndari á Fjallfoss. Var hann í Ameríku-
siglingum þar til í september 1943. Ákvað hann þá
að breyta til og réði sig sem háseta á 10 þúsund smá-
lesta bandarískt olíuflutningaskip, sem hafði bæki-
stöð í Hvalfirði. Sigldi það í veg fvrir ski])alestir, sem
voru í förum milli Ameríku og Rússlands, og var þá
notað sem olíubirgðaskip fyrir þau skip, er voru lest-
unum til verndar. Var olíunni venjulega afskipsð fvr-
ir norðan og austan ísland. Segir Helgi, að meðal síð-
ustu skipanna, sem fengu olíu hjá þeim, hafi verið
orustuskipið Duke of York, og átti það sér stað í
Eyjafirði. Skömmu síðar réði þetta sama skip niður-
lögum þýzka orustuskipsins Scharnhorst við Noregs-
strendur. Öðru hverju var rússneskum fylgdarskipum
FRJALS VERZLUN
63