Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1953, Síða 9

Frjáls verslun - 01.08.1953, Síða 9
hann gekk á stýrimannaskóla, sem herinn rak. Sóttist honum námið vel og lauk prófi. í árslok 1945 fer hann enn einu sinni í siglingu, en í þetta skiptið er hann bara farþegi en ekki sjómaður, þó hann hafi prófskírteini upp á vasann. Er ferðinni heitið til Man- ila á Filipseyjum, þar sem hann var ráðinn fyrsti stýrimaður á flutningaskip á stærð við Vatnajökul. í leit að líkum hermanna. Hefst nú nýr þáttur í sjómennsku Ilelga. Hann hefur til þessa verið háseti og kyndari frá því hann fór að sigla fyrir þremur árum síðan. 1 San Fernando, skammt frá Manila, býður hans nýtt skip og nýtt starf. Sem fyrsti stýrimaður siglir hann með þessu skipi á þriðja ár milli hinna ýmsu eyja í Filipseyjaklassanum. Fyrsta árið var skip Helga í birgðaflutningum fyrir herinn og var þá víða komið við á eyjunum. Tók síðan við heldur óvenjulegt og ekki sem geðfelldast starf. Var Helga og félögum hans fengið það hlutverk að heim- sækja fjölmargar af eyjunum, og áttu þeir að leita þar að líkum hermanna, sem fallið höfðu í stvrjöld- inni, og flytja þau til Manila. Þaðan voru líkin svo send til Bandaríkjanna. Með skipinu voru um 40 her- menn, og höfðu þeir meðferðis híla og ýmiskonar tæki, sem þeir notuðu í sambandi við leitina. Var mikið leitað í niðurskotnum flugvélaflökum, en þau lágu á víð og dreif um allar eyjarnar. Helgi minnist þess, að í einni ferðinni hafi þeir haft um 1200 lík innanborðs, og geta menn rétt ímvndað sér, að lyktin bafi ekki verið sem bezt þarna í hitasvækjunni. Tvo Islendinga hitti Helgi á meðan hann var í siglingum við Filipseyjar. Annar þeirra hét Garðar Jóhannsson, og var hann einnig stýrimaður á skipi af svipaðri stærð og því, sem Helgi sigldi með. Garðar fórst fyrir tæpum tveimur árum síðan í ofvirði með skipinu Pennsylvania, sem var á leið frá Japan til Bandaríkjanna. Hinn landinn var Geir Jónsson. kunn- ingi Helga, sem hafði siglt með honum áður. Nú var Geir 3. stýrimaður á spítalaskipi, sem tilheyrði herm um. IJitti Helgi hann af tilviljun dag nokkurn i Maii' ila, og höfðu þeir mælt sér mót næsta dag til að spjalla saman um það, sem á daga þeirra hafði drifið frá því þeir skildu síðast. Ekki varð þó af þeim endurfundi, þar sem hvirfilvindur skall á allt í einu, og rak skip Helga út um alla höfnina í Manila, þótt |iað hefði bæði akkerin úti. Komst mikill glundroði á allt vegna þessa óveðurs, og skemmdir urðu víða miklar. Hjá dönskum perluveiðara. Eftir að líkflutningunum lauk á Filipseyjum voru teknar vistir í Manila og því næst haldið til Austur-Indíu. Siglt var til eyjarinnar Amboina, sem þá var bækistöð hollenzka hersins í Norður- Molucca eyjaklassanum, og var hafður þar sama- staður næstu átta mánuðina. Tilgangurinn með þessum leiðangri var sá sami og áður. Álti að leita að líkum fallinna Bandaríkjahermanna, sem barizt höfðu á þessum slóðum. Heimsóttar voru á milli 40 og 50 eyjar á þessu tímabili, og voru um 30 her- menn með skipinu lil þess að annast leitina, en þeir skiptu sér í smá hópa og dreifðu sér þannig um eyj- arnar. Láta mun nærri, að Helgi hafi farið fimmtán sinnum yfir Miðjarðarlínuna meðan á leitinni stóð í Austur-Indíu. Meðal eyja þeirra, sem Helgi kom til, var ein, sem Aroe heitir, en hún liggur um 100 km. suðaustur af Nýju Guinea. Þar hitti hann gamlan danskan skipstjóra, Monsted að nafni, sem hafði stund- að perluveiðar á þessum slóðum í þrjátíu ár. Átli karl eina þrjátíu kúttera, sem bann gerði út þá átta mánuði ársins, þegar monsúnvindarnir voru hagstæðir. Safn- aði hann perlum úr ostruskeljum, en markað hafði hann fyrir skeljarnar í Bandaríkjunum. Talaði karl- inn ágætlega, bæði dönsku og ensku, þrátt fyrir langa útivist, auk þess, sem liann talaði mál hinna innfæddu reiprennandi. Fannst Monsted hin mesta tilbrevting í því að hitta Islending á þessum slóðurn, enda ósenni- legt, að nokkur Frónsbúi hafi lagt þangað leið sína áður. Hafði sá danski lent í ýmsum ævintýrum þarna á eyjunum, og m.a. höfðu Japanir tekið hann til fanga í síðustu styrjöld, en hann komst undan á flótta úr fangabúðunum til Ástralíu. Þaðan lagði hann svo leið sína til Danmerkur, krækti sér í kvonfang og hafði með sér til eyjarinnar, sem var orðið hans heimili. Ekki hélzt honum lengi á húsfreyjunni, því hún var öll á bak og burt eftir tvo mánuði. Henni líkaði ekki vistin á eyjunni, þrált fyrir allar perlurnar. Karlinn vildi nú endilega kenna Helga þá list að veiða perlur, svo hann gæti tekið við útgerðinni eftir sinn dag. Hafði hann mikinn hug á því að fá einhvern Norðurlandabúa sem eftirmann sinn, og þarna fannst honum tækifærið hafa borizt upp í hendur sér. Helsi kvaðst ekki hafa viljað særa karl með því að segja blákalt nei við þessu boði, og sagðist hann mundi skrifa seinna og tilkynna honum þá ákvörðun sína. Skildi með þeim við svo búið. í boði hjá innfœdum. Var nú siglt til Spice-eyja, sem voru undir yfirráð- um Hollendinga. Þar mátti sjá stórar og glæsilegar marmarahallir, sem Hollendingar notuðu sem sumar- bústaði fyrir stríð. Nú voru þessar miklu byggingar mannlausar og í niðurníðslu. Helgi segir, að oft á FRJÁLS VERZLUN 65

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.