Frjáls verslun - 01.08.1953, Síða 12
Dr. JÓN E. VESTDAL:
Sementsverksmiðja á Akranesi
Skömmu fyrir síðustu aldamót (1895) var fyrst
byggt hús hér á landi úr steinsteypu gerðri úr sementi.
Með byggingu þess húss hefst nýtt tímabil í sögu húsa-
og mannvirkjagerðar þessa lands. Steinsteypan ruddi
sér brátt svo til rúms, að síðustu áratugina hafa að-
eins sárafá hús verið byggð úr öðru efni, og er varla
efnisins vegna gripið til annars bvggingarefnis, held-
ur af einhvers konar illri nauðsyn.
Þróunin var þó hægfara fyrst í stað, svo sem vænta
mátti. Aldamótaárið voru flutt inn 175 tonn af sem-
enti, en 1750 tonn árið 1905. Innflutningurinn minnk-
ar aftur, er 1450 tonn árið 1910, en síðan fer hann
vaxandi, og hefur sjaldan verið lát á þeim vexti. 1920
eru flult inn um 4 þús. tonn af sementi, 1930 um 20
þús. tonn, og helzt það innflutningsmagn lengst af,
unz komið er fram á fimmta tug aldarinnar. Þá vex
innflutningurinn hröðum skrefum og verður mestur
74 þús. tonn árið 1946. Síðan hefur verið allströng
takmörkun á innflutningi og notkun sements, svo að
minna hefur verið fyrir hendi til notkunar af þessari
vörutegund en landsmenn hafa æskt. En innflutning-
urinn hefur undanfarið verið sem hér segir:
1939: 20,4 þús. tonn
1945: 43,4 „ „
1946: 73,5 „
1947: 66,5 „
1948: 59,0 „
1949 : 44,4 „ „
1950: 36,9 „ „
1951: 32,7 „
1952: 45,7 „
Á árinu 1953 höfðu verið flutt inn fram til 1. sept.
32,0 þús. tonn af sementi.
★
Einn af framsýnustu mönnum þjóðarinnar, Jón Þor-
láksson, verkfræðingur, mun brátt hafa komið auga á,
Fábre.vtni atvinnuveffa þjóðarinnar hefur lönpum vcr-
|ð Frándur í Götu efnahagslífi landsmanna. Á þessu
hefur þó orðið mikil o£ ffóð breyting síðasta áratuginn
eða svo. Fjóðin stefnir að því að bíia sem bezt í haginn
íyrir þegna sína. Nýverið fróku til starfa tvö stœrstu
orkuver landsins, og senn líður að því, að Áburðarverk-
nmiðjan taki til starfa. Nœsta skrefið á sviði stóriðn-
aðar verður bygging scmentsverksmiðju, og eru þœr
frainkvæmdir skammt undan.
FKJÁLS VERZLUN leitaði til dr. Jóns E. Vestdals,
er manna bezt hefur kynnt sér það mál, og er form.
byggingarnefndar verksmiðjunnar, og bað hann segja
lesenduin blaðsins eitthvað nánar frá þessu fyrirhugaða
stórvirki í íslenzkum iðnaði. Varð liann góðfúslega við
þeirri beiðni blaðsins. — Kitstj.
hvað hér var í uppsiglingu. Upp úr aldamótunum síð-
ustu gerði hann athugun á því, hvort mögulegt myndi
vera að framleiða sement hér á landi, og hvort slík
framleiðsla myndi svara kostnaði. Mun þetta vera
fyrsta athugun, sem gerð er á framleiðslu sements hér
á landi
En margar hafa á eftir farið.
Tvennt er það einkum, sem því hefur valdið, að eigi
hefur orðið úr framkvæmdum um byggingu sements-
verksmiðju hér á landi fyrr en nú:
Sandffeymslan í byggingn. — Ljósm.: Steinar rt'»fsson.
68
FRJÁLSVERZLUN