Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1953, Page 22

Frjáls verslun - 01.08.1953, Page 22
FLOTTAMAÐ IJRIW W, hom, sa og sign siaradi Leon Jolson kom til Bandaríkjanna árið 1947 með konu sína, $1.67 í peningum og mjög svo takmarkaSa kunnáttu í ensku. Hann var pólskur flóttamaSur, þeg- ar hann sté á land í nýja heiminum — í dag veitir hann forstöSu fyrirtæki, sem selur fyrir $25 milljónir á ári. „Þetta var enginn galdur," er Leon Jolson vanur aS segja. „Hver sem er hefði getað gert það sama“. Svo kann ef til vill að vera, en enginn gerði það nú samt. Það eina, sem Jolson flutti með sér vfir hafið, var þekking á saumavélum. Fjölskylda Jolson hafði haft umboð í Póllandi fyrir hinar ítölsku Necchi sauma- vélar fyrir stríð. Þegar Þjóðverjar hertóku Varsjá, bjargaði Jolson konu sinni frá því að lenda í fangabúðum með því að fá hana til að samþykkja falsaða pappíra, sem sögðu hana vera Aría. Sjálfur var hann sendur í Poniatowfangabúðirnar, sem voru yfirfullar af fólki, er var vant saumaskap. Vinnan í fangabúðunum var aðallega í því fólgin að sauma þýzka einkennisbúninga. Jolson var gerður að verk- stjóra, og álti hann að sjá um viðgerðii á 130 sauma- vélum í nokkrum fangabúðum. Eftir þrjá mánuði hár- ust þær fréttir út frá neðanjarðarhreyfingunni, að Þjóðverjarnir hefðu í hyggju að drepa alla Gyðinga í Poniatow. Jolson hætti nú á það að reyna að strjúka, og fór hann frá einni fangabúðinni til annarar unz hann gat læðst út á hveitiakur. Gekk hann um stund, þat til hann kom að járnbraut, og tókst honum að komast sem laumufarþegi til Varsjá, en þar hafði hann skilið konu sína eftir. í Varsjá gekk hann í neðanjaiðar- hreyfinguna og gætti leyniútvarps í földu herbergi. Ef hann hefði fundist, hefði það þýtt skjótan dauð- daga, svo Jolson lokaði sig inni og kom ekki í dags- 1 jósið í 20 mánuði. Honum var daglega færður matur af einum samstarfsmanna hans, sem var umsjónarmað- ur hússins. Kona hans heimsótti liann einu sinni til tvisvar í viku, og þá venjulega um hánótt. Jolson léttist um 20 kg. á meðan á þessari eldraun stóð, en dyflissu- tilveran var að mörgu leyti þess virði að reyna hana, því hann komst yfir mikið af mikilvægum upplýsing- um, og Þjóðverjarnir höfðu aldrei hendur í hári hans. Þegar styrjöldinni lauk, fóru Jolson og kona hans í flóttamannabúðir og létu skrá sig á lista hjá Rauða krossinum með það fyrir augu að komast til Ameríku. Þegar þau loksins komust til Bandaríkjanna, stóðu þau andspænis því vandamáli, hvernig þau ættu að afla sér lífsviðurværis. Jolson snéri sér þá að því eina, sem hann kunni — hann gekk á milli íbúðarhúsa og fatavinnustofa og bauðst til þess að gera við sauma- vélar. Segja má, að tímarnir hafi verið hliðhollir honum. Á meðan á stríðinu stóð, höfðu margar hilað- ar saumavélar verið lagðar til hliðar, þar sem illmögu- legt var að fá varahluti. Jolson sem sérfræðingur í sínu fagi komst fljótt að því að nóg var að starfa, og ekki leið á löngu, áður en hann hafði opnað lítið verkstæði, en til þess naut hann aðstoðar stofnunar, sem veitir m.a. innflytjendum hagstæð lán. Jolson veitti því athvgli, að hinar amerísku sauma- vélar voru hvergi nærri eins fjölhæfar og Necchi- vélin án tengihluta. Myndi amerískt kvenfólk ekki hafa áhuga fyrir þessum kostum ítölsku saumavélar- innar, sem var svo vinsæl í Evrópu? Hann hætti öllu sínu sparifé í það að komast að því rétta í þessu máli. Jolson pantaði nú þrjár saumavélar frá Necchi verk- smiðjunum í Pavia, sem er skammt frá Mílanó. Var ein vél af hverri gerð, sem fyrirtækið framleiddi. Þessar saumavélar sýndi Jolson hverjum þeim kven- manni, sem kom á verkstæði hans. Móttökurnar gáfu 78 FRJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.