Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1953, Page 24

Frjáls verslun - 01.08.1953, Page 24
tímaritum og keyptar heilsíðu auglýsingar til að lýsa hinum mörgu kostum þeirra. Árið 1952 námu þessi 10%, sem sett voru til hliðar, hvorki meira né minna en $2,5 milljónum, og var þá ákveðið að auglýsa saumavélarnar á sérstökum út- varps- og sjónvarpsdagskrám. Hin mikla eftirspurn í Bandaríkjunum, sem var komin upp í 100.000 Necchi saumavélar árið 1952, hafði geysimikla byltingu í för með sér fyrir írölsku verksmiðjuna, sem aflaði nú bandarísks gjaldeyris að upphæð $6 milljónir á ári. Ný viðbótarbygging var reist á stærð við gömlu verksmiðjuna, og er hin nýja bygging eingöngu notuð til framleiðslu fyrir Banda- ríkjamarkað, sem nemur nú um 75% af heildarfram- leiðslu Necchi-verksmiðjunnar. Þessi nýja verksmiðja er talin vera einhver sú fullkomnasta í F.vrópu, og eru afköst hennar 1000 saumavélar á dag. Hjá Necchi verksmiðjunum í Pavia vinna nú 4500 manns, sem njóta ýmissa hlunninda, er annað verksmiðjufólk á Italíu þekkir ekki. í Bandaríkjunum einum vinna í dag um 4000 manns á vegum Necchi fyrirtækisins og annarra þeirra fyrir- tækja, sem framleiða fyrir það. Aðeins vélasamstæðan er framleidd í Italíu, en ýmislegt annað. svo sem raf- magnsmótor og tréverk smíðað í Bandaríkjunum. Saumavélarnar eru síðan settar saman í New York og sendar þaðan til verzlana víðsvegar um landið. Sala Necchi vélanna í Bandaríkjunum á s.l. ári, sem nam $25 milljónum, var ekki nema 10% af heildar- sölu saumavéla þar í landi. „Þegar við bvrjuðum fyr- ir fimm árum síðan,“ segir Jolson, „var tiltölulega mjög lítið af saumavélum flutt inn í landið. Eftir að við riðum á vaðið hafa aðrir komið á eftir, og nú eru tugir þúsunda af erlendum saumavélum fluttar inn á mánuði hverjum. Samkeppnin skaðar ekki neinn — hún heldur okkur bara við efnið.“ ——— -----——-— -------------—■------ -1 NÝSTÁRLEG SÉRVERZLUN í september mánuði tók til starfa ný sérverzlun hér í bæ, sem eingöngu verzlar með vörur fyrir yngstu borg- arana. Er hér um að ræða barnafataverzlun og hefur henni verið valið nafnið „Storkurinn.“ Verzlunin er til húsa að Grettisgötu 3. Eigandi verzlunarinnar er frú Unnur Eiríksdóttir, en hún var lengi forstöðukona Fyrirkomulag og innrétting búðarinnar er smekkleg, Fyrirkomulag og innrétling búðarinnar er smekkleg og hefur maður Unnar, Örlygur Siguiðsson, listmál- ari, skreytt verzlunina á nýstárlegan og skemmtilegan hátt. Á verzlunin án efa eftir að eignast marga og góða viðski])tavini. Þetta gefur tilefni til þess að hvetja kaupsýslumenn almennt að hyggja betur að innréttingu og fyrirkomu- lagi verzlana sinna. Verzlunin á að vera þannig úr garði gerð, að hún laði viðskiptavinina að en fæli þá ekki frá. Þeim peningum, sem varið er lil að fegra og betrumbæta verzlunarplássið, þarf ekki að sjá eftir, því að þeir koma fljótt til baka í auknum viðskiptum. Jolson er annars mjög hrifinn af því, hvað helzlu kep])inautar hans eru vingjarnlegir. „Nýlega snæddi ég hádegisverð með ráðandi manni í firma, sem er skæð- ur keppinautur okkar,“ segir Jolson. „Þetta var eins ánægjuleg hádegisverðarstund og hugsast getur. F.kki lét keppinaulur minn eitt orð falla á móti mínu fyrir- tæki, og virðist þetta koma Evrópumanni einkennilega fyrir sjónir. Hann hló bara og sagði, að Necchi hefði neytt hina bandarísku saumavélaframleiðendur til að endurbæta framleiðsluna til stórra muna, og það kvað hann vera fyrirtak“. Leon Jolson hefur það fyrir venju á ári hverju, að minnast komu sinnar til Bandaríkjanna með „þakkar- gjöfum.“ Á síðastliðnu ári gaf hann Columbia há- skólanum $10.000, og í ár myndaði hann $250.000 sjóð til eflingar félagasamtökum, sem stuðla að auk- inni vináttu þjóða og kynþátta á milli. Má segja, að Necchi saumavélin afkasti góðum saumaskap um leið og hun styrkir hið mjög svo viðkvæma efni alþjóða- vináttu. 80 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.