Frjáls verslun - 01.08.1953, Blaðsíða 27
ekki verið að setja íyrir sig, þótt vinnutíminn væri
langur, eða þá að fara fram á greiðslu fvrir yfirvinnu,
því slíkt þekktist ekki. Menn höfðu meiri hug á því
að vinna fyrirtækinu sem mest gagn og vinna sig jafn-
framt í álit hjá húsbændum sínum, sem skapaði mögu-
leika fyrir tryggri framlíðaratvinnu. Ef ekki hjá sjálfu
fyrirtækinu, sem unnið var fyrir þá stundina. þá hjá
iiðrum atvinnurekendum síðar.
Ljósadýrð fyrir Friðrik VIII.
Eitt af því, sem Hjörlur var látinn hal'a með höndum
eftir að hann korn til Brydesverzlunar, var að annast
u]>psetningu og hafa umsjón með ljóstækjum þeim,
er verzlunin hafði til sölu. Nefndust þau „LUX“-ljós
og voru notuð í þá daga til lýsingar i búðum. skrif-
stofum og vinnustofum og ennfremur sem götuljós.
Hafði verzlunin einkaumhoð fyrir Island á þessurn
ljósatækjum, sem voru framleidd af sænskri verk-
smiðju, A.B. ,.LUX“ í Stokkhólmi. Hafði Hjörtur
kynnt sér nreðferð þessara tækja og gat því veitt allar
upplýsingar um notkun og meðferð þeirra.
Þegar Friðrik konungur VIII. heimsótti Island sum-
arið 1907, fór aðalmóttökuhátíðin fram á Þingvöll-
um. Lánaði Brydesverzlun há Hjört til Þingvalla til
að annast uppsetningu „LUX“-ljósa i Konungshúsið,
veizlu- og móttökuskálEnn og hér og þar um hátíðar-
svæð'ð. Þá sá hann einnig um u])]>setningu liósatækia
í Miðbæ:arbarnaskólanum, en þar var konungi haldin
veizla, þegar hann kom aftur til bæjarins. ,.LUX“-
Ijósin voru mikið notuð í Reykjavík, þar til gaslýsing
var sett í allan bæinn.
Þecrar hepianin er með.
Árið 1910 voru uppi miklar bollaleggingar í Reykja-
vík um að koma á fót stóru verzlunarfyrirtæki, sem
enskir auðmenn stóðu á hak við. en umboðsmenn þessa
fyrirtækis hér voru þeir Einar Benediktsson skáld og
Helgi Zoega kaupmaður. Átti verzlunarfvrirtæki betta
að vera nokkurskonar „Magasin“ með mörgum deild-
um, er hefðu á boðstólum allan hugsanlesan varning.
Einn af starfsbræðrum Hjartar við Brydesverzlun
benti honum á, að barna mvndi vanta mann sem deild-
arst'óra fvrir skipa-, búsábalda- og iárnvörudeildirn-
ar og skyldi hann sæk<a um hessa stöðu. bar sem hún
mvndi verða vel launuð. Fór Hjörtur að orðum starfs-
bróður síns og hitti Helga Zoega að máli. Frétti hann
þá. að danskur maður, sem vann við Thomsensverzlun
hefði sótt um stöðuna. Hafði honum verið falið að
gera fullkomið vfirlit yfir allar þær vörutegundir,
sem heyrðu undir sérgreinir deildanna. þar sem krafizl
var, að væntanlegur deildarstjóri væri fagmaður í áð-
urnefndum greinum. Sagði Zoega við Hjört, að ekki
myndi það saka, þótt hann gerði slíkt vöruyfirlit, og
yrði það þá borið saman við það, sem bærist frá þeim
danska. Ákvað Hjörtur að reyna þetta og skilaði yfir-
litinu fyrir tiltekinn tíma. Nokkrum dögum síðar gerði
Helgi Zoega boð eftir Hirti. en þá var staddur hjá
Helga enskur sérfræðingur í hinum umræddu grein
um. Var Hirti tilkynnt, að þar sem yfirlit hans væri
mun fullkomnara en það, sem hinn danski maður
hafði skilað, stæði lionum til boða staða deildarstjóra
við væntanlegt verzlunarfyrirtæki, og va'ri kaupið til
að byrja með kr. 150,00 á mánuði. Var þetta boð mjög
freistandi fyrir Hjört, sem hafði þá kr. 80,00 í mán-
aðarkaup hjá Brydesverzlun. Bað hann nú um frest til
að ákveða sig, þar sem hann vildi lala fyrst við hús-
hændur sína og skýra þeim frá málavöxtum áður en
hann tæki einhverja ákvörðun í málinu. Þegar þeir
fréltu, hvað llirti hafði verið boðið hjá hinu nýja
verzlunarfélagi, samþykktu þeir strax að greiða honum
sama kaup, ef hann færi ekki frá Brvdesverzlun. Varð
Hjörtur því áfram hjá fyrirtækinu, því þar líkaði hon-
um vel og vildi helzt komast hjá því að þurfa að breyta
um húsbændur.
Að þessu sinni, sem og oftar, hafði lánið ekki snúið
bakinu við Hirti. Þær fyrirætlanir að koma á stofn
hinu nýja verzlunarfélagi i Reykjavtk urðu að engu,
og þar með hefði Hjörtur orðið atvinnulaus, ef hann
hefði sagt upp stöðu sinni hjá Brydesverzlun. Þetta
atvik varð til þess, að kjör Hjartar ekki einungis bötn-
uðu, heldur voru þau orðin einhver þau beztu, sem
þekktust meðsl verzlunarmanna í Reykjavík á þeim
tímum. Telur Iljörtur, að sá lími, sem hann vann við
verzlunarstörf hjá Brydesverzlun, hafi orðið mjög
lærdómsríkur fyrir sig vegna vöruþekkingar þeirrar,
er hann varð aðnjótandi og annars lærdóms á verzl-
unarsviðinu, sem hefur orðið honum til ómetanlegs
gagns ávallt síðan. Hjörtur vann við Brydesverzlun,
þar lil hún hætli seinl á árinu 1913. Afhentu húsbænd-
ur lians honum þá hin beztu meðmæli, og voru þau
skráð á danska tungu. Varðveitir Hjörtur þessi með-
mæli sem helga eign.
Verðlaun íyrir gluggaskreytingar.
Um haustið 1913 rak Hjörtur jólaverzlun fyrir
verzlunina „Nýhöfn“ í Melstedshúsunum gömlu, þar
sem nú er Útvegsbanki íslands. Eigandi verzlunarinnar
var þá Guðmundur Kr. Guðmundsson, sem síðar varð
eigandi Hótel Heklu. Hafði Hjörtur mikla sýningu á
alls konar jólavarningi í gluggum verzlunarinnar fyr-
ir jólin. Dagblaðið Vísir efndi þá til verðlaunakeppni
fyrir tvær bezlu gluggasýningarnar fvrir jólin, og
FRJÁLS VERZLUN
B3