Frjáls verslun - 01.08.1953, Síða 35
Frá Siglufirði
ÁLM
Framleiðsla álms (aluminium) fer stöðugt vaxandi.
Léttleiki málmsins, en um leið styrkleiki, hefur rutt
honum braut í lofti, á láði og legi, og verður notkun
hans víðtækari með hverjum degi.
Er of langt mál up]i að telja öll þau margvíslegu
not, sem heimurinn hefur í dag af þessum handhæga
málmi. Skipasmíðaiðnaðurinn hefur t.d. tekið álm í
þjónustu sína í sívaxandi mæli við báta og skijiabygg-
ingar. Má í því sambandi geta þess, að við smíði hrað-
skreiðasta farþegaskips heims voru notuð tvö þúsund
tonn af álmi.
Árið 1901 nam heimsframleiðsla álms varla 10 þús-
und tonnum. Tuttugu árum síðar var ársframleiðslan
komin upp í 128 þús. tonn. Árið 1940 nam heims-
framleiðslan 780.622 tonn, 1950 var hún komin upp
í nær 1,5 milljón tonn, og árið 1960 er áætlað, að
heimsframleiðslan muni verða 3,2 milljón tonn. Sézt
glögglega af þessu hve framleiðslan hefur vaxið hröð-
um skrefum.
- 91
FRJÁLS VERZLUN