Frjáls verslun - 01.01.1963, Blaðsíða 4
sum árin einnig verið framleitt allmikið af honum
handa öðrum verksmiðjum.
Eftir því sem framleiðslan jókst fór rafmagns-
notkunin vaxandi og hafa verið reistar tvær raf-
rafmagnsstöðvar í dalnum nokkru fyrir innan Höy-
anger. Eru allar þrjár stöðvarnar í eigu félagsins
og er uppsett vélaafl þeirra í heild 40 þús. kw. En
nú stendur meira til en nokkru sinni, þar sem tvö-
falda á framleiðslugetuna á aluminíum, er þá verður
26 þús. tonn á ári. Verður öll aukningin byggð á
innfluttu alumina, þar sem aluminíumoxyd-vinnsl-
an verður ekki aukin. Nýtt orkuver verður sprengt
inn i fjallið á bak við upphaflegu rafmangsstöðina
og aðfallsgöng verða sprengd upp fjallið, þannig að
í þau renni úr vatnakerfi, sem er í 550 m hæð. Þar
uppi á að gera nokkrar stíflur og frárennslisskurði
til miðlunar.
Við ýmsa crfiðleika er að etja í sambandi við
þessa stækkun. Verstur er skorturinn á Iandrými,
þar sem verið er að sprengja inn í fjallið alveg ofan
í ganda orkuverinu og verksmiðjunum, svo að segja
undir gömlu aðrennslispípunum og um 250 m löng-
um „reykháf“, sem á sínum tíma var sprengdur
inn í fjallið og opnast hátt upj)i í hlíðinni. Setur
]>að sérkennilegan svip á staðinn að sjá fjallið
reykja, — og J)að fluorgasi.
Til að auðvelda hinar nýju framkvæmdir hefur
varið lagður „Kambavegur“ upp fjallið, sem þó
hefur hvergi ineiri halla en 1:8. Norðmenn virðast
ekki láta sér bregða við slíkar framkvæmdir, sem
eru helzt sambærilegar við það, að Vesturlandsveg-
urinn lægi yfir Esjuna miðja, en tæki ekki krók út
á Kjalarnes.
Hvað mestir erfiðleikar verða ])ó á að stækka sjálf-
ar verksmiðjubyggingarnar, sem verða byggðar al-
veg ofan í bænum, J)ótt ekki hafi áður verið langt
á milli. Uppskipunaraðstöðuna á einnig að bæta.
Um 6 })ús. br. tonna skip hafa getað lagzt að hafn-
argarði verksmiðjunnar, og hefur alumina verið
flutt inn í sekkjum. Nú er ietlunin að 12 þús. tonna
skip geti vcrið í förum þarna og flutt aluminíum-
oxydið ósekkjað, sem ])á vrði blásið með lofti upp
í turna á hafnarbakkanum.
Áætlað er, að fjárfesting vegna tvöföldunar alu-
miníumvinnslunnar í Höyanger muni nema 00 millj.
norskra króna eða um 540 millj. ísl. kr. Segja má,
að })essi aukning sé framkvæmd í alveg sérstöku
augnamiði. Þegar á árinu 1917 var stofnað dóttur-
fyrirtæki NACOS: A/S Nordisk Aluminiumindustri,
sem í smáum stíl hóf framleiðslu á ýmsuin vörum
úr aluminíum í Holmestrand, vestan Oslofjarðar.
Þessi framleiðsla jókst smám saman og er nú unnið
úr meira magni af málmi en Höyanger getur af-
greitt. Nú er hugmyndin að stækka verksmiðjuna
í Holmestrand fyrir 32 millj. norskra kr., eða um
tæpar 200 millj. ísl. kr., og vinna úr öllum málm-
inum frá Ilöyanger eftir stækkunina þar, en hana
á að framkvæma á árunum 1961—65. Um Holme-
strand-verksmiðjuna vcrður rætt frekar síðar.
Eins og áður segir er skortur á athafnasvæði í
Höyanger, en þetta gildir ekki aðeins fyrir verk-
smiðjuna heldur og fyrir bæinn, sem risið hefur um-
hverfis hana. f rauninni er afar litið um undirlendi
við hinn mikla Sognfjörð og alla hans mörgu þver-
dali. Fjöllin ganga víða, að því er virðist, ])ver-
hnípt í sjó fram og er oft drjúgur spölur á milli
byggðarlaga. Árið 1915 voru 120 íbúar í Höyanger,
en strax og bygging verksmiðjunnar hófst tók að
myndast þar bær, sem nú hefur um 3 þús. íbúa.
Af þeim vinna um 700 við stórfyrirtækið og er því
Árdal III. Verið er að ganga frá oinum i skála F
4
FRJÁLS VERZLUN