Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 5
ekki önnur starfsemi rekin þarna, nema þjónusta
við íbúana.
Forráðamenn verksmiðjunnar halda því fram, að
þetta sé einn fallegasti iðnaðarbær Noregs. Og víst
er hann fallegur, að vísu býsna klemmdur inni milli
hárra fjalla, en íbúðarhúsin eru flest snot.ur og mörg
stór og falleg. Það leynir sér ekki, að íbúarnir kom-
ast vel af. Verzlanirnar eru furðu stórar í ekki
stærri bæ (þetta er ekki miðstöð fyrir neina sveit),
húsin gjarnan nýmáluð, garðarnir vel hirtir og göt-
urnar malbikaðar.
Stefnan í húsnæðismálunum hefur verið sú, að
sem flestir eignuðust sitt eigið húsnæði. Hefur fé-
lagið aðstoðað starfsfólk sitt á ýmsan hátt í þessu
augnamiði. Meðal annars með lánveitingum, sölu
á lóðum við vægu verði, aðstoð við kaup á bygg-
ingarefni og fleira því um líkt. Ilefur þessi aðstoð
einnig náð að nokkru til sumarhúsa (fjeldhytte),
sem eru mjög vinsæl í Noregi.
Bæjarfélagið hefur á ýmsan hátt notið fyrirtækis-
ins við að koma upp fullkomnum spítala, fallegu
ráðhúsi og glæsilegri kirkju. Og ekki má gleyma
því, að nú eru uppi ráðagerðir að koma upp nýju,
stóru félagsheimili, sem skal vera allt í sejin, bíó,
leikhús og hljómleikahús og almennur skemmti-
staður.
Alll starfsfólkið nýtur eftirlauna á efvi árum og
í samvinnu við bæjarfélagið hefur verið byggt dval-
arheimili fyrir gamalt fólk, þar sem það getur búið
út af fyrir sig. Þegar það getur aftur á móti ekki
hugsað um sig sjálft, getur það komizt á elliheimili
bæjarins.
Af því, sem hér hefur verið sagt, og ýmsu fleiru,
verður ekki annað ráðið en stórfyrirtækið 'setji
metnað sinn í að búa starfsfólki sínu góð lífsskil-
yrði, og öllu betri en almennt gerist í landinu.
Ardal
Innst í hinum 150 km langa Sognfirði liggur
Árdalstangen og er það 1 km breið og lt/2 km löng
eyri, sem mynduð er af jökulruðningi. Há fjöll
gnæfa yfir á tvo vegu, en fyrir innan eyrina tekur
við Árdalsvatnið, sem er 10 km langt. Þar fyrir inn-
an hefur jökullinn einnig myndað tiltölulega slétt
land, Övre Árdal, sem er 1X2 km að stærð. Þarna
er mesta undirlendi við Sognfjörð, sem hefur átt
sinn þátt í því, að þar er nú stærsta aluminíum-
verksmiðja Noregs. En minna má landrýmið ekki
vera og má segja, að á undirlendið við báða enda
Árdals-vatns megi troða allt að 120 þús. tonna
aluminíumverksmiðju ásamt íbúðarhúsum starfs-
fólks og öllu öðru, sem tillieyrir slíku stórfyrirtæki.
Þarna bjuggu þó á öldinni sem leið nokkur
hundruð manns á um 50 smájörðum, og lifðu eink-
um á sauðfjárrækt. Staðurin var mjög einangraður,
vegir engir, og þar sem vatnið fyllti alveg upp í
dalinn varð að fara á bátum milli Efra-Árdals og
Árdals-tangans. Landbúnaðurinn gaf æði lítið í aðra
hönd, og ekki var mikið að hafa upp úr þeim fáu
ferðamönnum, sem hættu sér fótgangandi yfir fjall-
lendið. Mjög fækkaði þarna vegna Ameríkuferðanna
og um tírna var jafnvel talað uin að rýma alveg dal-
inn og að allir íbúarnir flyttust til Ameríku. Nokk-
ur hluti fólksins hélt þó tryggð við fjöllin og jökul-
urðina, óafvitandi þess, að í nágrenninu voru ein
beztu virkjunarskilyrði í öllum Noregi. Það þurfti
nýjar kynslóðir og nýja tíma til að njóta góðs af
því.
í 20 km fjarlægð frá Efra-Árdal liggur Tvin-
vatn í 1080 m hæð. í það renna ár af 800 km2
vatnasvæði, en sjálft vatnið myndar yfir 300 millj.
rúmmetra uppistöðu. Þegar á árinu 1908 var stofn-
að félag til að nýta hina hagkvæmu aðstöðu, sem
þarna var til vatnsvirkjunar; en hún komst svo
í hendur Norsk Ilydro þrem árum síðar. Mælingar
og áætlanagerð Iiófst, en þar sem Norsk Hydro
hafði í mörg önnur horn að líta, miðaði þessu mjög-
hægt. Þó var svo komið undir lok fjórða tugs aldar-
innar, að nær því var lokið við 11 km löng aðfalls-
göng að virkjunarstað og fara átti að leggja meiri
kraft í framkvæmdirnar. En þá hernámu Þjóð-
verjar Noreg og voru strax með miklar ráðagerðir
um að framleiða aluminíum í stórum stíl í landinu.
Eins og á stóð, var enginn staður betur til slíks
fallinn en einmitt Árdal. Þar mátti á tiltöhilega
stuttum tíma koma upp 90 þús. kw. orkuveri, er
nægja myndi til framlciðslu á 50 þús. tonnum af
aluminíum-oxydi, með Pedersen-aðferðinni, og síðan
til vinnslu á 24 þús. tonnum af fullunnu aluminíum.
Meiri hlutann af hernámstímanum var unnið að
þessari áætlun og flutt inn mikið efni frá Þýzka-
landi. Alumina-verksmiðjan átti að vera niðri við
hafnarbakkann á Árdalstanganum, en aluminíum-
verksmiðjan í Efri-Árdal. Milli þessara staða var
svo gerður vegur í hinni bröttu fjallshlíð við Árdals-
vatnið, með nokkrum jarðgöngum og eru ein þeirra
hin lengstu sinnar tegundar í Noregi. Verksmiðju-
byggingarnar risu og farið var að setja niður ofna
og vélar, og ennfremur var nær búið að ganga frá
5 af 6 túrbínum í Tyin-orkuverinu, sem komið hafði
FltJÁLS VERZLUN
5