Frjáls verslun - 01.01.1963, Síða 6
verið fyrir rúmum 100 m inni í fjallinu fyrir ofan
Efri-Árdal; en stríðinu lauk án þess að nokkurt
aluminíum væri framleitt.
Fyrirtækið komst nú í hendur norska ríkisins og
sumarið 1946 ákvað Stórþingið, að framkvæmdum
skyldi haldið áfram, svo að hægt væri að hcfja
aluminíumframleiðslu. Fyrri rafgreiningarsamstæð-
an var sett í gang í ársbyrjun 1948 og hin síðari
tveim árum síðar. Norðmönnum tókst með nokkr-
um lagfæringum og nýrri skipulagningu að auka
framleiðsluna úr hinum áætluðu 24 þús. tonnum
í 29 þúsund tonn á ári. Þar með var komin í fullan
gang sú framleiðslueining, sem kölluð hefur verið
Árdal I.
Eins og áður segir höfðu Þjóðverjarnir ætlað að
framleiða aluminíum-oxyd á Árdals-t.anganum, en
við hinar breyttu aðstæður eftir stríð kom í ljós,
að hagkvæmara myndi að flytja inn alumina. Var
gerður samningur til langs tíma við Aluminium
Union Ltd., Kanada, um, að það léti alumina af
hendi í skiptum fyrir fullunnið aluminíum. Alumina-
verksmiðjunni í Árdal var liins vegar breytt og hún
notuð í 10 ár, til 1959, til framleiðslu á vanadium-
blönduðu hrájárni, en síðan hafa byggingarnar ver-
ið notaðar vegna framleiðsluaukningarinnar í Efri-
Árdal og um leið kom sér vel að geta losað 11 þús.
k\v. frá járnbræðslunni.
í árslok 1955 ákvað Stórþingið að auka skyldi
aluminíumframleiðsluna í Árdal um 36 þús. tonn
á ári. I samræmi við þessa ákvörðun voru byggðar
tvær rafgreiningarsamstæður á árunum 1956—1959,
sem kallaðar hafa verið Áral TT. Var að þessu
sinni gert samkomulag við Aluminium Company
of America (ALCOA) um, að það sæi Árdal IT
fyrir aluminíum-oxydi, gegn því að fá það borgað
í fullunnu aluminíum. Þótti norska fyrirtækinu
komin góð reynsla af þessari tilhögun. Meðan á
samningstímanum stendur þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af verði á alumina, þar sem ákveðin
kílóafjöldi nf aluminíum er alltaf látinn í skiptum
fyrir hvert tonn af alumina. Með þessu móti er í
rauninni búið að selja fyrirfram um 30% af alumin-
íum-framleiðslunni og er mikið öryggi í því fólgið.
Það kom í ljós að margir framleiðendur á alumin-
íum-oxydi vildu gera slíka samninga og gerði það
Norðmönnum auðveldara að komast að hagkvæm-
um samningum. Hefur þannig verið samið tvo ára-
tugi fram í tímann. En talið er, að áhugi aluminíum-
oxyd framleiðenda á viðskiptum af þessu tagi, sé
nú minni en áður.
Strax og lokið var við stækkun verksmiðjunnar
(1959), var enn hafizt handa um nýja stækkun,
Árdal III, sem nú er nýlokið. Ilinar nýju samstæð-
ur eiga að framleiða yfir 32 þús. tonn og á þá árs-
framleiðslan í Árdal að vcra komin upp í um 100
þús. tonn
Samhliða stækkun verksmiðjunnar hefur svo ver-
ið unnið að byggingu nýs orkuvers í Fortundaln-
um, 20 km fyrir norðan Efri-Ardal. Orkuvcrið hefur
verið byggt í áföngum með nýjum stíflum og frek-
ari vatnsmiðlun og hefur verið tekið í notkun eftir
því sem orkuþörf verksmiðjunnar hefur vaxið. Að-
alvélasalurinn er 250 m inni í fjallinu fyrir ofan
Fortundalinn og stærstu háspennuvirkin hafa einn-
ig verið staðsett inni í fjallinu. Tvær háspennu-
línur (132 þús. volt) liggja hlið við hlið frá orku-
verinu að verksmiðjunni og komast þær upp í
1350 metra hæð yfir sjávarmál, en það er það hæsta,
sem háspennulínur hafa verið lagðar í Noregi.
Að línurnar skuli vera tvær, er að sjálfsögðu
gert í öryggisskyni, svo mjög sem aluminíum-
verksmiðjur eru háðar stöðugum aðflutningi raf-
orku.
Aluminíumverksmiðjan í Efri-Árdal hefur verið
byggð upp í þremur aðaláföngum, eins og áður seg-
ir, og eru tvær rafgreiningarsamstæður (elektrolyse-
hall) í hverjum áfanga. Skálar A og B eru Iivor um
sig 350 m. langir og 41 m breiðir. Skálar C og D
eru undir einu þaki, 500 m langir og samtals 57 m
breiðir. Og skálar E og F eru 523 m og 435 m langir
og 25 m breiðir. Til að koma skálum C og D fyrir
á sléttu landi þurfti að fjarlægja 230 þús. m3 af
jarðvegi, en allt það magn var síðan notað til
uppfyllingar undir skála E og F. Margar minni
byggingar eru svo rétt við skálana. t tveimur eru
steyptar aluminíumblokkir, tvö stór verkstæði eru
þarna, stór rannsóknarstofa, geymslubyggingar og
margt fleira.
Smám saman hefur uppskipunaraðstaða verk-
smiðjunnar á Árdals-tanganum verið bætt. Nú er
þar 217 m langt viðlegupláss, þar sem allt að 17
þús. tonna skip geta lagzt að, en aluminíum-oxydið
er yfirleitt flutt í stórum skipum. Aftur á móti er
fullunnið aluminíum selt til svo margra staða, að
mikið af því er flutt t. d. með 2—3 þús. tonna
skipum eða minni. Á hafnarbakkanum eru geysi-
stór Iosunartæki og kranar, og þarna var sett upp,
fyrir nokkrum árum, fyrsta tækið sinnar tegundar
í heiminum, sem gat sogað alumina með lofti upp
úr Iestum skipa, og síðar var öðru eins tæki bætt
6
FRJÁLS VERZLUN