Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 8
Verksmiðjubyggmgamar a Sunndalsöra
byggð á innfluttu alumina, og liefur verið gerður
samningur til langs tíma við Aluminium TJnion Ltd.,
Kanada, um skipti á aluminium-oxydi og fullunnu
aluminíum.
Þar sem aðeins eru 2,3 km frá orkuverinu að
verksmiðjunni er ekki nema 12 þús. volta spenna
á línunni á milli, sem siðan er breytt í 800 volta
jafnstraum. Alls eru nú 300 ofnar í verksmiðjunni,
hver fyrir um 70 þús. ampera straumstyrkleika og
12 tilraunaofnar, hver fyrir um 140 þús. amper.
Minni ofnarnir taka hver um sig 35 m2 gólfflöt, vega
100 tonn, og í þeim eru framleidd að jafnaði 430
kg af aluminíum á sólarhring.
Hafnargarður verksmiðjunnar er 307 m langur
og dýpið við hann um fjöru var 9,2 m, og gátu
14 þús. tonna skip athafnað sig þarna, en nú hefur
enn verið dýpkað við hafnargarðinn svo að 17 þús.
tonna skip komast að honum. Lengd garðsins er
miðuð við, að tvö stórskip geti legið þar í einu,
jafnframt því sem hægt só að ferina minna skip af
aluminíum á sama tíma. Annars mun fátítt, að
stóru alumina-flutningaskipin komi nema eitt í
einu, enda þarf ekki mjög marga farma yfir árið.
En hafnaragarðurinn á einnig að duga verksmiðj-
unni þótt hún verði stækkuð.
Þarna eru, auk venjulegra krana, losunartæki af
svipaðri gerð og í Ardal, sem sjúga alumina upp
úr lestunum, nema hvað þessi eru jafnvel enn af-
kastameiri og anna allt að 280 tonnum á klst. Frá
þessurn tækjum er aluminíum-oxydið flutt á færi-
böndum í geymsluhús, sem tekur 40 þús. tonn.
Þaðan er svo hráeíninu blásið eftir þörfum í svo-
kiilluð „dagsilo“, sem eru tvö og taka hvort 800
tonn. Frá þeim er aluminíum-oxydinu ekið í sér-
stökum rafmagnsvögnum að hverjum einstökum
ofni.
Þó að fjöllin séu ekki langt undan, er verksmiðju-
stæðið á Sunndalseyri ekki eins innilokað og í Efri-
Árdal, eins og áður segir. Þar munu því ekki vera
neinir erfiðleikar með reykinn, sem kemur frá verk-
smiðjunni, enda hefur verið komið upp víðtæku
kerfi, er safnar gasinu frá ofnunum og hreinsar það.
Sagði fróður maður á staðnum, að rekstur hreins-
unarkerfisins kostaði um 1 millj. norskra kr. á ári.
Á Sunndalseyri voru um 1800 íbúar á árunum
fyrir stríð, en nú (1962) eru þeir 6900. Það eru því
ekki alveg allir á staðnum, sem byggja afkomu
sína á verksmiðjunni, enda er Sunndalseyri tölu-
verð samgöngumiðstöð, þar sem þar mætast nokkr-
ir vegir, svo sem fyrr segir.
Um sjálfa byggðina á Sunndalsevri er svipað að
segja og í Árdal. Húsin eru flest ný, og mun hálft
annað þúsund manns búa í húsnæði, sem verk-
smiðjan á og leigir út, en flestir bvggjendur eigin
húsnæðis hafa notið fyrirgreiðslu hennar, á einn
eða annan hátt, Ymiss konar starfsemi í byggðar-
8
FlfJÁl/S VERZLXTN