Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 11
aluminíum-vinnslan í Holmestrand þá orðin ein
hin mesta sinnar tegundar i Evrópu.
Framleiðslan í Hólmestrand er mjög fjölbreytt.
Þar eru búnar til plötur í öllum stærðum og þykkt-
um, bæði sléttar og bylgjaðar; einnig alls konar
þræðir og fléttaðir kaplar (m. a. háspennulínur);
margvísleg ílát, frá mjólkurbrúsum upp í gífurlega
stóra geyma fyrir mjólkurbú, geyma til olíuflutn-
inga o. fl.; ýmsir prófílar fyrir byggingariðnað og
annað; einangrunarefni; örþunnar umbúðir fyrir
mat; túbur; niðursuðudósir og margt fleira. Um
40% framleiðsluvaranna er selt úr landi, þar af
meginhlutinn til annarra Norðurlanda. Munu nýir
fiskkassar á Islandi vera gott dæmi þar um.
Holmestrand verksmiðjan hcfur verið brautryðj-
andi á því sviði að gera aluminíum hæft til notk-
unar í niðursuðuiðnaðinum. A síðustu árum hefur
mikla sölu leitt af þessu starfi.
Verksmiðjulóðin í Holmestrand er nú fullbyggð,
þrátt fyrir mikla uppfyllingu út í sjóinn. Er nú
byrjað að byggja á nýjum stað, fyrir ulan borgina,
og hafa þar þegar verið rcistar tvær byggingar. I
annarri eru aluminíum-ræmur húðaðar með ýmsum
efnum og í mörgum litum (og er liægt að hafa mis-
munandi húðun hvoru megin). í þessi kerfi, sem
er hálfsjálfvirkt, er á hverjum tíma 275 m löng
ræma, sem er ýmist í völsum, þurrkofnum eða öðru
slíku, enda gengur hún í gegnum þrjár hæðir liúss-
ins. I hinni byggingunni eru aluminíum-stangir hit-
aðar upp og síðan teygðar og togaðar í margvís-
legustu þræði, sem gjarnan eru svo vafðir og spunn-
ir aftur saman í gildari kapla. Er þetta allt sann-
arlega ævintýraleg sjón að sjá, og virðist hreint
ekki svo flókið, við lausleg kynni, að því tilskyldu,
að fullkomnar vélar og æfðar hendur vinni að
framleiðslunni. Og vel er unnið, því að 90% starfs-
mannanna vinnur að verulegu leyti í ákvæðisvinnu,
enda er kaupið hátt.
oeiooccccooiootoococo
Maður, sem þjáðist af svefnleysi: „Ég er alveg
dauðþreyttur. Svaf eiginlega ekkert í nótt.“
Vinur hans: „Af hverju reyndirðu ekki að telja
kindur?"
Svefnleysinginn: „Gerði það einmitt. Taldi upp
í tíu þúsund kindur. Kom þeim öllum aftan á vöru-
bíl og lét aka þeim í kaupstaðinn. En þegar ég var
búinn að reikna út, hvað ég tapaði miklu á kaup-
unum, var kominn fótaferðartími."
ÁFANGAR
Ámi II. Bjarna.son tók í des-
ember sl. við starfi útibússtjóra
Verzlunarbanka íslands hf„ að
Laugavegi 172. Árni er fæddur
19. marz 1933. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Verzlunarskóla Is-
lands 19.55 og stundaði síðan al-
menn skrifstofustörf þar til í
ágústmánuði 1957, að hann réðst
til starfa hjá Verzlunarsparisjóðnum og síðar Verzl-
unarbankanum, lengst af sem gjaldkeri, þar til
hann tók við hinu nýja starfi.
★
Bragi Hannesson lögfræðingur
hefur nýlega verið ráðinn aðstoð-
arbankastjóri Iðnaðarbanka Is-
lands hf. Bragi er fæddur 10. des.
1932. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í lleykja-
vík 1953, en kandídat í lögum
frá Háskóla Islands varð hann
1958. Tók hann þá við starfi
framkvæmdastjóra Landssambands iðnaðarmanna
og framkvæmdastjóri Meistarasambands iðnaðar-
manna varð hann 1960. Ilann varð héraðsdóms-
★
Pétur Sœmundsen viðskipta-
fræðingur hefur nýlega verið ráð-
inn aðstoðarbankastjóri Iðnaðar-
banka íslands hf. Pétur er fædd-
ur 13. febrúar 1925. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verzlunarskóla
Islands 1946 og prófi í viðskipta-
fræðum frá Háskóla íslands 1950.
Tók hann þá við starfi hjá Félagi
íslenzkra iðnrekenda og framkvæmdastjóri þeirra
saintaka varð hann 1956. Pétur hefur gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir iðnrekendur. Hann var
endurskoðandi Iðnaðarbankans frá stofnun hans til
1956, og átti sæti í stjórn Verzlunarsparisjóðsins
og í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf. til 1962.
lögmaður 1959.
FKJÁLS VEHZLUN
11