Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1963, Síða 20

Frjáls verslun - 01.01.1963, Síða 20
mennri vísindastefnu landa og tengslum hennar' við hagþróun þess. Frumvarp til laga og rannsóknir í þágu atvinnuveganna I upphafi ]>essa erindis minntist ég á frumvarp til laga um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, scm lagt var fvrir Alþingi nn skömmu fyrir áramótin. í þessu frumvarj)i er meðal annars gert ráð fyrir endurskijmlögðu Rannsóknaráði rikisins, sem í eigi sæti 17 menn. I’eir eru ólaunaðir og skulu valdir nokkuð jöfnum höndum á meðal vísindamanna, stjórnmálamanna, atvinnurekenda og hagfræðinga. Verkefni ráðsins eru mjög þau sömu og gert er ráð fyrir í fyrrncfndri skýrslu Efnahags- og framfara- stofnunarinnar, enda var að töluverðu leyti stuðzt við ráðleggingar þeirrar stofnunar, þcgar frumvarp- ið var upphaflega samið. Ráðið á að vera ráðgef- andi, en það er að vísu, eins og frumvarj)ið er nú lagt fyrir Alþingi, ábyrgt gagnvart menntamála- ráðherra, en ekki gagnvart ríkisstjórninni í heild eða forsætisráðherra, eins og lögð er áherzla á að vera beri í fyrrnefndri skýrslu. Þetta þyrfti að at- liuga og að minnsta kosti er nauðsynlegt, að ráð- inu sé tryggður aðgangur að ríkisstjórninni í heild og að hverjum þeim ráðuneytum, sem um einhverj- ar greinar vísinda fjalla, og jafnframt að háskóla landsins, vísindastofnunum og atvinnuvegum. Trvggja verður jafnframt betur en gert er tengsli þessa ráðs við hina nýju Efnahagsmálastofnun landsins, sem ekki var til þegar frumvarpið var samið. Það þarf einnig að hafa góða sjóði undir höndum, þannig að það geti styrkt hinar ýmsu greinar vísinda eins og það telur nauðsynlegt hverju sinni. I þessu sama frumvarpi er einnig gert ráð fyrir 5 rannsóknastofnunum atvinnuveganna og eru þær arftakar núverandi rannsóknastofnana Atvinnu- deildar Háskólans og Rannsóknastofu Eiskifélags- ins. Töluverð breyting er gerð á rekstri og fyrir- komulagi þessara stofnana. Lögð er á það áherzla að tengja þær betur atvinnuvegum en verið hefur, bæði með ráðgjafanefndum og þátttöku viðkom- andi atvinnuvegar í stjórn rannsóknastofnunar- innar. í þessu sambandi hefur verið nokkuð um það deilt, hversu langt beri að ganga í því að losa hinar hagnýtu rannsóknastofnanir undan daglegri stjórn ráðuneyta og tengja þær fremur viðkomandi at- vinnuvegi. Sjálfur er ég sannfærður um, að engin ástæða er til þess fyrir ríkisvaldið að reka eitt hag- nýtar rannsóknastofnanir. Því ber að visu skylda til að fylgjast með starfsemi þeirra, þar sem opin- bert fé er lagt fram, og tryggja að því fjármagni sé að minnsta kosti vel varið, en hagnýtar rannsókna- stofnanir eru til lítils nýtar, ef þær hafa ckki hend- ina á slagæð viðkomandi atvinnuvegar, finna það- an þörfina og beina til baka þeim niðurstöðum, sem fást. Þetta samband er nauðsynlegt. Ég get t. <1. getið þess, að í Englandi, þar sem hið framúr- skarandi rannsóknaráðuneyti þess lands hefur sett á stofn um 50 samvinnurannsóknastofnanir ríkis- valdsins og hinna ýmsu atvinnugreina og greiðir allt að 40% af rekstrarkostnaði, skij)ar ráðuneytið aldrei meira en tvo af fjöldamörgum stjórnarmið- lemum hverrar stofnunar. Ráðuneytið, en Bretar 20 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.