Frjáls verslun - 01.01.1963, Síða 22
Heildverzlunin Hekla í nýjum húsakynnum
í byrjun febrúarmánaðar flutt.i Heildverzlunin
Hekla hf. ásamt dótturfyrirtækjum, starfsemi sína
í nýtt og glæsilegt stórhýsi við Laugaveg 170—172.
Auk myndarlegrar skrifstofubyggingar og verzlunar,
er þar að finna eitt fullkomnasta bifreiðaverkstæði
á ísland, sem byggt er samkvæmt ströngustu er-
lendu kröfum. Á einum áratug hefur Heildverzlun-
in Hekla hf. flutt inn 2500 Volkswagenbifreiðir,
hundruð Land-Rover bifreiða og mikinn fjölda
þungavinnuvéla og bátavéla af Caterpillar-gerð.
Kringum þessi heimsþekktu firmanöfn snýst nú
nær öll starfsemi Heklu og stórhýsið við Laugaveg
er byggt til þess að veita notendum þessara tækja
betri þjónustu, en áður hefur verið hægt.
I’að skal ósagt látið, hvort bóndasoninn unga úr
Húnavatnssýslu, sem fluttist til Reykjavíkur lí)
ára að aldri og stofnsetti Heildverzlunina Heklu
ári síðar ásamt Magnúsi Víglundssyni, hefur dreymt
um það sem 30 ára starf átti eftir að færa honum
í skaut. Unga menn dreymir stóra drauma en þó
má með ólíkindum teljast að Sigfús Bjarnason hafi
órað fyrir því þ. 20. des. 1933, er Hekla var stofn-
uð, að hann ætti eftir að flytja fyrirtæki sín, í hópi
hinna stærstu sinnar tegundar á íslandi, í svo
glæst húsakynni tæpum 30 árum seinna. En nú
hefur sú orðið raunin á, og er glöggt dæmi ]>ess að
enn getur það gerzt á íslandi, að ungir og fátækir,
en ötulir og djarfir menn byggi upp mikil atvinnu-
fyrirtæki á tiltölulega fáum árum.
Fyrstu árin fæst Hekla einkum við innflutning
á ávöxtum frá Spáni, en síðar, þegar viðskipti færð-
ust í vaxandi mæli til Bandaríkjanna, hóf Hekla
innflutning á bifreiðum, bílavarahlutum, raftækjum
og rafmagnsvörum og þegar líða tók á fjórða ára-
tuginn varð raftækjasalan meginþáttur í starfsemi
fyrirtækisins.
Volkswagen kemur til sögunnar
í nóvember 1952 var Heklu boðið að taka að
sér umboðsstörf á Islandi fyrir lítinn bíl, Volks-
wagen, sem flestum þótti ljótur í þá tíð. Sigfús
segir sjálfur, að það hafi sér líka fundizt í fyrstu,
en bíllinn hafi verið byrjaður að seljast svo vel
erlendis, að liann kveðst hafa ályktað, að hann
hlyti að hafa eitthvað til brunns að bera. Hann
ákvað því að taka að sér umboð fyrir Volkswagcn
á íslandi. Á árunum 1953 og 1954 seldist bíllinn
lítið, en á árinu 1955 eru komnir til landsins um
22
FRJÁLS VERZLUN