Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 23
150 bílar af þessari gerð. Þegar hér er komið sögu
eru vinsældir bílsins farnar að aukast og fjórum
árum síðar ,þ. e. á árinu 1959 voru komnar liingað
t:l landsins um G00 Volkswagen bifreiðar og var
nú salan orðin mjög ör, miðað við það að innflutn-
ingur á bílum var þá enn mjög takmarkaður. Samt
sem áður taldi Sigfús þá einsýnt, að gcra yrði ráð-
stafanir til þess að mæta síauknum innflutningi
þessara bíla og bæta þjónustuna við Volkswagen-
eigendur, og á því ári var hafin bygging stórhýsis
þess, sem Hekla er nú flutt í.
Þegar innflutningur bifreiða var gefinn frjáls fór
sáían upp úr öllu valdi, ekki aðeins á Volkswagen-
bifreiðum, heldur einnig Land-Rover bifreiðum,
sem Ilekla hefur umboð fyrir, og á árinu 1962 seldi
Ilekla 1100—1200 bíla.
Svo ör vöxtur, sem Heildverzlunin Hekla hf.
hefur orðið fyrir á stuttum tíma skapar að sjálf-
sögðu margvísleg vandamál, en þau hafa verið yfir-
unnin með góðri samvinnu forstjóra og samstarfs-
fólks hans.
Hin nýju húsakynni
Gólfflötur hinna nýju húsakynna Ileklu er um
4200 nú í um 18.400 rúmmetra byggingu. Það sem
byggt hefur verið er þó ekki nema liluti þess, sem
áætlað er, því að ætlunin er að byggja þrjár hæðir
ofan á álmuna, er liggur við Laugaveg, nýja álmu
austast á lóðinni og hækka elztu bygginguna. Með
þessurn viðbótum bætast við um 18.000 rúmmetrar.
Það vekur sérstaka athygli og er til fyrirmyndar,
að allar aðkeyrslur að húsinu eru úr járnbentri
steinsteypu og sömuleiðis bifreiðastæði Laugavegs-
megin og milli álmanna cn milli brautanna verða
gróðurreitir.
Húsnæði bifreiðaverkstæðis Heklu er alls um
16.000 fermetrar. Verkstæðið annast eingöngu við-
gerðir á Volkswagen bifrciðum, Land-Rover og
Porsche. Er því skipti í deildir, sem eru: þvottur,
kvoðun, smurstöð, mælingar, skyndiviðgerðir, að-
alviðgerðir, vélaviðgerðir og réttingar. Auk þess eru
þar húsakynni fyrir móttöku- og biðstofu viðskipta-
vina, sem er um 40 fermetrar, skrifstofu og verk-
stjóra, og fatageymslu og kaffistofu verkstæðis-
rnanna.
IJr biðstofu sinni getur viðskiptavinurinn haft
samband við móttökumann verkstæðisins, skrifstofu
þess og varahlutaverzlun. Þar er sérstakur fulltrúi
verkstæðisins, sem annast alla fyrirgreiðslu við-
skiptavina. Allt fyrirkomulag verkstæðisins er í
fullu samræmi við Volkswagen og Land-Rover við-
gerðakerfin eins og þau eru skipulögð í Þýzkalandi
og á Norðurlöndum. Lýsing verkstæðisins er eins
og bczt gerist á Norðurlöndum, og meiri en þekkzt
hefur á verkstæðum hér áður.
Loftræstikerfi verkstæðisins er athyglisvert og
gert samkvæmt ströngustu kröfum, sem gerðar eru
í Þýzkalandi. Sjálfstætt kerfi er í gólfi fyrir afgas
frá vélum, sem keyrðar eru á vinnustaðnum, og
flytur kerfið útblástursgasið út úr verkstæðinu.
Annað loftræstikerfi er væntanlegt á næstunni, og
er hlutverk þess að endurnýja loftið á verkstæðinu
og flytja þangað hreint loft, hæfilega heitt og með
réttu rakastigi. Geislahitun er í gólfi, sem heldur
jafnframt gólfinu þurrara en ella. Sjálfvirkir hita-
og rakastillar eru alls staðar í verkstæðinu.
Verkstæðið er búið mjög góðum tækjum til starf-
seminnar. Helztu tækin eru þessi:
I þvottadeild cru tæki til þess að þvo bílana,
bæði nýja bíla og þá, sem koma til viðgerðar.
Þvottatækið er þrýstiúðari, sem heldur þvottaleg-
inum hæfilega heitum, og að loknum þvotti er
bíllinn þurrkaður. í kvoðunardeild er undirvagn-
inn kvoðaður til ryðvarnar og hljóðeinangrunar.
Tækið, sem þar er notað, er einnig þrýstiúðari.
Smurstöð hefur lyftur og annan útbúnað fvrir þrjá
bíla, sérstaka biðstofu fyrir viðskiptamenn og skrif-
stofu.
Mælingarstciðin rúmar tvo bíla. Þar fer fram
gagnger athugun á rafkerfi og raftækjum bílsins.
Einnig er gerð athugun á starfsemi hinna einstöku
Bilreiðaverkstæði Heklu er búið lullkomnustu tækjum, sem völ
er ó, Hér getur að líta eina fullkomnustu prófunarvél mótora,
sem til er.
FRJÁLS VERZLUN
23