Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1963, Page 23

Frjáls verslun - 01.01.1963, Page 23
150 bílar af þessari gerð. Þegar hér er komið sögu eru vinsældir bílsins farnar að aukast og fjórum árum síðar ,þ. e. á árinu 1959 voru komnar liingað t:l landsins um G00 Volkswagen bifreiðar og var nú salan orðin mjög ör, miðað við það að innflutn- ingur á bílum var þá enn mjög takmarkaður. Samt sem áður taldi Sigfús þá einsýnt, að gcra yrði ráð- stafanir til þess að mæta síauknum innflutningi þessara bíla og bæta þjónustuna við Volkswagen- eigendur, og á því ári var hafin bygging stórhýsis þess, sem Hekla er nú flutt í. Þegar innflutningur bifreiða var gefinn frjáls fór sáían upp úr öllu valdi, ekki aðeins á Volkswagen- bifreiðum, heldur einnig Land-Rover bifreiðum, sem Ilekla hefur umboð fyrir, og á árinu 1962 seldi Ilekla 1100—1200 bíla. Svo ör vöxtur, sem Heildverzlunin Hekla hf. hefur orðið fyrir á stuttum tíma skapar að sjálf- sögðu margvísleg vandamál, en þau hafa verið yfir- unnin með góðri samvinnu forstjóra og samstarfs- fólks hans. Hin nýju húsakynni Gólfflötur hinna nýju húsakynna Ileklu er um 4200 nú í um 18.400 rúmmetra byggingu. Það sem byggt hefur verið er þó ekki nema liluti þess, sem áætlað er, því að ætlunin er að byggja þrjár hæðir ofan á álmuna, er liggur við Laugaveg, nýja álmu austast á lóðinni og hækka elztu bygginguna. Með þessurn viðbótum bætast við um 18.000 rúmmetrar. Það vekur sérstaka athygli og er til fyrirmyndar, að allar aðkeyrslur að húsinu eru úr járnbentri steinsteypu og sömuleiðis bifreiðastæði Laugavegs- megin og milli álmanna cn milli brautanna verða gróðurreitir. Húsnæði bifreiðaverkstæðis Heklu er alls um 16.000 fermetrar. Verkstæðið annast eingöngu við- gerðir á Volkswagen bifrciðum, Land-Rover og Porsche. Er því skipti í deildir, sem eru: þvottur, kvoðun, smurstöð, mælingar, skyndiviðgerðir, að- alviðgerðir, vélaviðgerðir og réttingar. Auk þess eru þar húsakynni fyrir móttöku- og biðstofu viðskipta- vina, sem er um 40 fermetrar, skrifstofu og verk- stjóra, og fatageymslu og kaffistofu verkstæðis- rnanna. IJr biðstofu sinni getur viðskiptavinurinn haft samband við móttökumann verkstæðisins, skrifstofu þess og varahlutaverzlun. Þar er sérstakur fulltrúi verkstæðisins, sem annast alla fyrirgreiðslu við- skiptavina. Allt fyrirkomulag verkstæðisins er í fullu samræmi við Volkswagen og Land-Rover við- gerðakerfin eins og þau eru skipulögð í Þýzkalandi og á Norðurlöndum. Lýsing verkstæðisins er eins og bczt gerist á Norðurlöndum, og meiri en þekkzt hefur á verkstæðum hér áður. Loftræstikerfi verkstæðisins er athyglisvert og gert samkvæmt ströngustu kröfum, sem gerðar eru í Þýzkalandi. Sjálfstætt kerfi er í gólfi fyrir afgas frá vélum, sem keyrðar eru á vinnustaðnum, og flytur kerfið útblástursgasið út úr verkstæðinu. Annað loftræstikerfi er væntanlegt á næstunni, og er hlutverk þess að endurnýja loftið á verkstæðinu og flytja þangað hreint loft, hæfilega heitt og með réttu rakastigi. Geislahitun er í gólfi, sem heldur jafnframt gólfinu þurrara en ella. Sjálfvirkir hita- og rakastillar eru alls staðar í verkstæðinu. Verkstæðið er búið mjög góðum tækjum til starf- seminnar. Helztu tækin eru þessi: I þvottadeild cru tæki til þess að þvo bílana, bæði nýja bíla og þá, sem koma til viðgerðar. Þvottatækið er þrýstiúðari, sem heldur þvottaleg- inum hæfilega heitum, og að loknum þvotti er bíllinn þurrkaður. í kvoðunardeild er undirvagn- inn kvoðaður til ryðvarnar og hljóðeinangrunar. Tækið, sem þar er notað, er einnig þrýstiúðari. Smurstöð hefur lyftur og annan útbúnað fvrir þrjá bíla, sérstaka biðstofu fyrir viðskiptamenn og skrif- stofu. Mælingarstciðin rúmar tvo bíla. Þar fer fram gagnger athugun á rafkerfi og raftækjum bílsins. Einnig er gerð athugun á starfsemi hinna einstöku Bilreiðaverkstæði Heklu er búið lullkomnustu tækjum, sem völ er ó, Hér getur að líta eina fullkomnustu prófunarvél mótora, sem til er. FRJÁLS VERZLUN 23

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.