Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 24
Allur aðbúnaður starfsmanna í bifreiðaverkstæði Heklu er til
fyrirmyndar. Hér sést verkfærakassi, sem hefur að geyma öll
þau verkfæri, sem einn starfsmaður þarf að nota. Verkfæra-
kassann má einnig nota sem sæti fyrir viðgerðarmanninn.
ganglima vélarinnar almennt. Stöður allra hjóla eru
mældar og starfsemi stýrisútbúnaðar, reynd hemlun
hvers hjóls og þau jafnvægisprófuð á miklum snún-
ingshraða. Þá er og mældur ljósstyrkur og stefnur
allra ljósa bílsins.
Skyndiviðgerðir fara fram í sérstöku þriggja bíla
húsnæði við hlið mælingastöðvarinnar. Þar eru
verkfæri til allra minniháttar lagfæringa og still-
inga.
Réttingarverkstæðið rúmar átta bíla auk bíla-
hluta, og eru þar tæki til allra réttinga og sam-
setninga, m. a. nýjustu tæki til punktsuðu. Á að-
alverkstæði er mjög gott rúm fyrir átján bíla, og
þar eru framkvæmdar allar meiri háttar viðgerðir.
Á vélaverkstæðinu er gert við vélar, gírkassa og
drifbúnað, einnig framás með stýrisbúnaði og
fjaðrabúnaði. Þar eru hin fullkomnustu tæki til
þessara nota. Þá er þar stór þvottavél, þar sem
vél eða drifbúnaður eru ])vegin í heilu lagi áður en
viðgerð hefst. Þessi vél gjörbreytir jjrifnaði við við-
gerðirnar. í vélaverkstæðinu er einnig tæki, sem
reynir vélarnar eftir að viðgerð hefur farið fram.
Þar er vélin keyrð allt upp í hámarkshraða áður
en hún er sett í bílinn að nýju, og sýnir tækið hvort
nokkra frekari viðgerð þarf að framkvæma.
Bifreiðavarahlutaverzlun
I verzluninni verður eins og áður verzlað með
varahluti í Volkswagen og Land-Rover bifreiðir
ásamt varahlutum í Caterpillar tæki. Verzlunin er
haganlega innréttuð, enda allt fyrirkomulag sniðið
£4
eftir ströngustu kröfum, sem framleiðendur gera í
heimalönduin sínum. Öllum varahlutum er raðað
i sérstaka skápa, sem eru meters breiðir og tveggja
metra háir. Skápar þessir eru alls 160, og hólfaðir
þannig að í hverjum þeirra má geyma 117 mismun-
andi hluti. Stærð hólfanna má breyta með lítilli
fyrirhöfn ef þörf krefur.
Öllum varahlutum er raðað upp eftir númerakerfi,
sem er á sérstakri spjaldskrá, þannig að afgreiðslu-
menn geta á svipstundu fundið umbeðinn hlut.
Milli skápanna er hvergi minna en meters breið-
ur gangur, og er það gert til þess að unnt verði
síðar meir að nota sérstaka vagna til að safna vara-
hlutum á þegar um stórar afgreiðslur er að ræða.
Þess skal getið að skáparnir eru smíðaðir hjá einu
dótturfyrirtæki Heklu.
Afgreiðslan er mjög rúmgóð, og snýr ein hlið
hennar út að Laugaveginum. Sú hlið er 27 metra
löng og samfellt gler í stálrömmum. Gerir það,
ásamt hinni ágætu raflýsingu, verzlunina mjög
bjarta, auk þess sem þarna er glæsilegur sýningar-
gluggi. Við afgreiðsluborðið má auðveldlega afgreiða
8—10 viðskiptamenn í einu, auk þess sem þar er
sérstök gjahlkerastúka.
Af Jæssu má sjá að vinnuskilyrði eru hin ákjósan-
legustu í verzluninni, og þar af leiðandi full öryggi
fyrir skjótri og góðri Jojónustu.
Breytingor ó starfstilhögun
Fyrirtækjum Sigfúsar Bjarnasonar verður nú
skipt niður í deildir. Er Jjar fyrst að nefna bifreiða-
deild Volkswagen og Land-Rover. Framkvæmda-
stjóri þessarar deildar verður Árni Bjarnason, sem
um tuttugu ára skeið hefur starfað hjá Heklu hf.
Hjá honum mun starfa Finnbogi Eyjólfsson verzl-
unarstjóri, Jón Ármann Jónsson, framkvæmdastjóri
verkstæðisins, Óli M. ísaksson sölustjóri Land-Rov-
er og Örn Egilsson sölustjóri Volkswagen. Finnbogi
hefur séð um verzlun og varahluti bíladeildarinnar,
og starfað hjá fyrirtækjum Sigfúsar í um 20 ár.
Jón Ármann Jónsson var áður kennari við Vél-
skólann. Hann fór á síðasta ári í kynningardvöl til
Skandinavisk Motor A/S í Kaupmannahöfn og víð-
ar í Danmörku. Kynnti Jón sér sérstaklega vinnu-
tilhögun og fyrirkömulag ákvæðisvinnu, sem tíðk-
ast um allan heim hjá Volkswagen. Er það tilgang-
ur Sigfúsar að bjóða bílvirkjum ákvæðisvinnu í
nýja verkstæðinu, en að sjálfsögðu tekur það nokk-
urn tíma að koma á slíkri vinnutilhögun.
Oli M. isaksson hefur starfað hjá fyrirtækjum
FRJÁlvS VERZLUN