Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 25
Sigfúsar síðan 1945, og er auk þess elzti starfsmað-
ur bílaiðnaðarins hér á landi. Ilann er formaður
Sambands bifreiðaverkstæða á Islandi.
Caterpillarumboðið verður sérstök deild í nýju
húsakynnunum, og verður Sverrir Sigfússon fram-
kvæmdastjóri hennar. Sölustjórar verða Kjartan
Kjartansson fyrir bátavélar og Davíð Erlendsson
fyrir landvélar. Verzlunarstjóri varahlutadeildar-
innar verður Karl Karlsson.
Framkvæmdastjóri Rafmagnsdeildar Heklu er
Árni Ragnarsson, og framkvæmdastjóri Raftækja-
vinnustofu Heklu Svavar Bjarnason, bróðir Sigfús-
ar. Á Svavari liefur hvílt meginþungi við fram-
kvæmdir nvbygginganna við Laugaveg 170—172.
Forstöðumaður söluskrifstofu Heklu á Keflavík-
urflugvelli er Gunnar Petersen.
Enn eru ekki talin öll umboð Heklu, en ætlunin
er að sameina öll önnur umboð í eina deild. Af
öðrum umboðum má t. d. nefna Goodyear, stærsta
gúmmífyrirtæki heims, Solex, sem smíðar blönd-
unga í flestar bifreiðir Evrópu og The Bendix
Corporation, sem smiðar bifreiðahluti fvrir margar
bílasmiðjur bæði í Evrópu og Ameríku.
Þá er ótalin fjárhags- og bókhaldsdeild, sem Sig-
fús mun sjálfur veita forstöðu, auk þess sem hann
hefur að sjálfsögðu yfirumsjón með öðrum deildum
og er tengiliður milli þeirra. Þar verður Lýður
Björnsson skrifstofustjóri, en hann hefur starfað
hjá Heklu í rúm 20 ár, og gjaldkeri verður Jóhanna
Tryggvadóttir, sem sinnt hefur því starfi í um tíu
ár.
Á fyrstu hæð álmunnar við Laugaveg verður af-
markað svæði fyrir sýningarbíla, en austasta hluta
álmunnar hefur Sigfús leigt út. Leigutakar eru
Georg Ámundason & Co., Verzlunarbankinn og rak-
arastofa Skúla Nielsen. Georg Ámundason annast
m. a. sölu og viðgerðir útvarpstækja í bifreiðir, og
gelur verið þægilegt fyrir eigendur Volkswagen og
Land-Rover bifreiða að eiga þar innangengt. Einnig
getur verið þægilegt fyrir viðskiptamenn að geta
brugðið sér á rakarastofu meðan beðið er eftir smá
viðgerðum.
Þessi lýsing á stórhýsi Heildverzlunarinnar Heklu
hf. ætti að gefa nokkra hugmynd um hina umfangs-
miklu starfsemi sem rekin er á vegum fyrirtækisins.
Fyrir 15 árum voru starfsmenn Heklu 7, en eru nú
70 og gert er ráð fyrir að með vorinu verði þeir
orðnir um 100.
Sigfús Bjarnason er sannfærður um að sala á
Aðalfundur Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
var haldinn í húsi félagsins, Vonarstræti 4, 12.
febrúar sl.
Formaður félagsins, Guðmundur H. Garðarsson,
setti fundinn og minntist í upphafi látinna félags-
manna.
Fundarstjóri var kjörinn Hannes Þ. Sigurðsson.
Skýrsla stjcmar
Formaður flutti skýrslu stjórnarinnar. Kom fram
í ræðu hans að starfsemi félagsins hafði verið um-
fangsmikil á árinu. Á starfsárinu var samið um veru-
legar hækkanir á kauptaxta félagsins og í haust fóru
fram viðræður við vinnuveitendur um breytingar
á flokkaskipan samninganna, en þær viðræður hafa
enn ekki borið árangur. Þá gat formaður um inn-
göngu verzlunarfólks í A. S. f. og kvað þar hafa
verið um að ræða ómetanlegt hagsmunamál laun-
þega í verzlunarstétt. Að lokum sagði formaður að
það færi mjög vaxandi að fólk leitaði aðstoðar og
upplýsinga hjá skrifstofu félagsins, og félögum færi
alltaf fjölgandi.
Gunnlaugur. J. Briem gaf skýrslu um Lífeyrissjóð
verzlunarmanna. Er afkoma hans mjög góð. Eignir
sjóðsins voru um síðustu áramót tæpar 42 milljónir
og höfðu aukizt á síðasta ári um rúmar 9,4 millj.
Kjör stjórnar
Aðeins einn list hafði borizt til kjörs stjórnar og
var hann því sjálfkjörinn. Formaður var kjörinn
Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur. í
aðalstjórn voru kjörnir til tveggja ára: Eyjólfur
Guðmundsson, Hannes Þ. Sigurðsson og Helgi Guð-
brandsson. Fyrir í aðalstjórn voru: Björn Þórhalls-
son, Gísli Gíslason og Ottó J. Ólafssn. í varastjórn
voru kjörnir: Halldór Friðriksson, ITreinn Halldórs-
son og Markús Stefánsson.
bifreiðum þeim sem hann hefur umboð fyrir, muni
halda áfram að vaxa, enda hafa fyrstu mánuðir
þessa árs, ekki gefið tilefni til þess að ætla annað.
Á 15 ára afmæli Heklu birtist grein um fyrir-
tækið í þessu blaði, sem lauk með þessum orðum:
„Frjáls Verzlun óskar Sigfúsi Bjarnasyni til ham-
ingju með fortíðina— og framtíðina líka . . .“ Það
virðist full ástæða til þess að endurtaka þessi orð nú.
FHJÁLSVERZLUN
25