Frjáls verslun - 01.01.1963, Page 27
Hvaða upplýsingar veitir
Iðnaðarmálastofnun íslands?
Á þessu ári verður Iðnaðarmálastofnun íslands
10 ára, en stofnuninni var komið á fót síðari liluta
árs 1953. Á sl. ári voru IMSÍ sett lög og segir þar
m. a.: „Markmið Iðnaðarmálastofnunar islands er
að efla framfarir í iðnaði hér á landi og stuðla að
aukinni framleiðni í íslenzku atvinnulífi.“
Tíðindamaður Frjálsrar Verzlunar gekk nýlega
á fund Sveins Björnssonar forstjóra IMSÍ og afl-
aði upplýsinga um starfsemi stofnunarinnar.
Tækniaðstoð
Sveinn skýrði svo frá ,að eitt meginverkefni IMSl
væri að sjá iðnaði landsmanna fvrir tæknilegri að-
stoð og upplýsingaþjónustu. IMSÍ aðstoðar t. d.
fjölda iðnfyrirtækja, senr annað hvort eru að hefja
starfsemi sína, eða endurskipuleggja rekstur sinn,
við að skipuleggja liúsakost, niðurröðun framleiðslu-
tækja og almennt skipulag framleiðslunnar, þannig
að sem bezt nýting hiisa og framleiðslutækja fáist.
IMSI hefur einnig tekið að sér að setja upp stofn-
kostnaðar- og' rekstraráætlanir fyrir ný fyrirtæki.
Upplýsingaþjónusta
Kjarninn í upplýsingaþjónustu IMSI er Tækni-
bókasafnið, sem er eina almenningsbókasafn sinn-
ar tegundar á íslandi og telur hátt á fjórða þúsund
bindi, auk tímarita. í þessu safni er einnig að finna
bækur um verzlunarmálefni og verzlunarhandbæk-
ur frá ýmsnm löndum. Aðsókn að-Tæknibókasafn-
inu tvöfaldaðist á síðasta ári frá því sem var árið
áður.
Iðnaðarmálastofnunin vinnur nú að því að koma
upp kvikmyndasafni og eru í því aðallega kvik-
myndir um tæknileg efni. Þessar kvikmyndir eru
fyrst og fremst notaðar í sambandi við fræðslustarf
í skólum, en eru einnig lánaðar út til einstaklinga
og þá ásamt sýningarvélum ef óskað er. I sambandi
við kvikmyndasafn þetta hefur stofnunin farið inn
á þá braut að setja inn í þær íslenzkt tal, og hefur
komið í ljós ,að það er mikilsvert til þess að sem
bezt not verði af kvikmyndunum. Iðnaðarmála-
stofnunin tekur að sér að afla ýmissa upplýsinga
erlendis frá fyrir fyrirtæki hér á landi. Stendur
stofnunin í sambandi við tæknistofnanir í O.E.C.D.-
löndunum.
Þá leitast IMSÍ við að greiða götu þeirra ís-
lenzku iðnaðar- og verzlunarmanna, sem hug hafa
á að heimsækja erlend fyrirtæki, komast til starfa
í erlendum fyrirtækjum eða sækja námskeið er-
lendis.
Ennfremur veitir IMSÍ þeim innlendu fyrirtækj-
um senr þörf hafa fyrir erlenda sérfræðinga, aðstoð
við útvegun þeirra.
Fræðslustarísemi
Iðnaðarmálastofnunin hefur gengizt fyrir fjölda
námskeiða fyrir iðnaðar- og verzlunarfólk, sum
þeirra í sainvinnu við aðra aðila. Á fyrstu starfs-
árurn stofnunarinnar voru t. d. haldin mörg nám-
skeið fyrir verzlunarfólk, kaupmenn og stórkaup-
menn. Frá þeim tíma rná rekja þá þróun, sem orð-
ið liefur hér á landi á undanförnum árum við til-
högun smásöluverzlana. Þá hafa einnig verið haldin
námskeið um stjórn og rekstur iðnfyrirtækja, um
nýjungar í vörudreifingu o. fl.
Mcð sérstökum lögum, sem sett voru 1961, er
stofnuninni falið að sjá um framkvæmd verkstjóra-
námskeiða. Fyrstu námskeiðin hafa þegar verið
haldin og eru það almenn námskeið, en síðar er
ætlunin að efna til sérnámskeiða fyrir verkstjóra úr
cinstökum starfsgreinum og loks fyrir verkstjóra-
efni.
Loks hefur IMSÍ gengizt fyrir námskeiðum um
hagræðingartækni, sem voru hin fyrstu hér á landi
sinnar tegundar .Er talin nauðsyn á að þjálfa nokkra
tugi rnanna í hagræðingartækni, sem hafa öðlazt
æðri tækni- eða hagfræðimenntun, ef Iiægt á að
vera að sinna þörfum atvinnuveganna á þessu
sviði á næstu árum.
Enn er ógetið þess þáttar í fræðslustarfsemi IMSÍ,
FIÍJÁLS VERZLUN
27