Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 28

Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 28
AF ERLENDUM VETTVANGI BRETAR I VANDA Ríkisstjórn Harold Macmillans liefur átt í mikl- um erfiðleikum að undanförnu, bæði innanlands og utan. Deilan um Skybolteldflaugarnar og endalok samningaviðræðnanna í Briissel kipptu stoðunum undan stefnu stjórnarinnar í varnarmálum og mál- efnum Evrópu, en innanlands heldur atvinnuleysi áfram að vaxa hröðum skrefum og nam tala at- vinnulausra í Bretlandi í janúarmánuði 814.000. IJessi tala mun þó nokkuð villandi, því að gert er ráð fyrir að veðrahörkur á Bretlandseyjum á þess- um tíma hafi valdið því að um 150.000 manns urðu að leggja niður vinnu um stundarsakir, aðallega í byggingariðnaðinum. Hinn rannverulegi fjöldi at- vinnulausra í janúar var því um 070.000 eða ca. 3% af vinnuaflinu. Þeir efnahagsörðugleikar, sem Bretar eiga nú við að stríða eru raunar ekkert nýtt fyrirbrigði. Frá stríðslokum hafa brezkar ríkisstjórnir orðið að glíma við mismunandi mikil efnahagsvandamál. Ein meginorsök þeirra er vafalaust sú, að brezki iðn- aðurinn hefur ekki verið endurnýjaður í samræmi við kröfur tímans í jafn ríkum mæli og iðnaður- inn á meginlandinu, þar scm allt var í rúst í lok stvrjaldarinnar og því ekki um annað að ræða, en byggja allt upp frá grunni. Sú staðreynd að brezk iðjuver hafa ekki tekið tækni nútímans í þjónustu sína sem skyldi hefur óhjákvæmilega leitt til þess að samkeppnisaðstaða Breta hefur versnað til muna og er slíkt ekki gott fyrir þjóð, sem lifir af því að flytja út fullunnar iðnaðarvörur. Gleggsta dæmið um þá deyfð, sem ríkt hefur yfir efnahags- og atvinnulífi á Bretlandseyjum sl. ára- tug er það, að á árunum 1051—1961 varð vöxt- ur þjóðarframleiðslunnar aðeins um 2% á ári að meðaltali og árið 1962 aðeins 1%. í öðrum Evrópu- löndum hefur 4% vöxtur þjóðarframleiðslunnar ekki þótt neitt til þess að státa af. EínahagsbandalagiS Akvörðun Macmillans um að sækja um fulla aðild Breta að Efnahagsbandalagi Evrópn átti sér tvennar orsakir. Annars vegar nauðsyn þess að opna brezkum iðnaði nýjan og stóran markað og liins vegar og ekki síður að veita Bretum aðild að hinu nýja pólitíska afli, sem upp er að rísa á meg- inlandi Evrópu. Á tímum stórvelda á borð við Bandaríkin og Sovétríkin getur hið fornfræga Breta- veldi ekki vænzt þess að gegna þýðingarmiklu hlut- verki í alþjóðamálum, nema í samvinnu við aðra. Ef Bretar hefðu fengið aðild að EBE hefði brezk- um iðnaði þar með opnazt nýir vaxtamöguleikar sem ekki er ómerkastur, en það er útgáfa tímarits- ins Iðnaðarmál, sem út kemur scx sinnum á ári hverju. 1 því riti er komið á framfæri greinum um tæknileg efni, sem margar eru teknar upp úr tíma- riti, sem gefið er út á vegum 0.15.C.D. Stöðlun Iðnaðarmálastofnuninni hcfur verið falið það hlutverk hér á landi að annast stöðlun. M’arkmiðið með henni er að setja reglur til samræmingar um gæði og eiginleika framleiðsluvara í ýmsum grein- um. Hefur IMSÍ aðallcga unnið að stöðlun á sviði byggingariðnaðar og hefur þörfin fyrir stöðlun auk- izt mjög á því sviði eftif að viðskipti landsmanna beindust meir til Vesturlanda, en verið hafði um nokkurt skeið. Sveinn Björnsson sagði að lokum, að vaxandi áherzla hefði verið lögð á framleiðni og hagræð- ingarmál síðustu missiri. Væri mikið starf óunnið á þvi sviði og forráðamönnum IMSÍ því mikið ánægjuefni, hvað áhugi hefði aukizt mikið á þess- um málum að undanförnu. 28 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.