Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 30
Verzlunarbankinn opnar úSibú
Hinn 20 desember sl. opnaði Verzlunarbankinn
fyrsta útibú sitt í Hekluhúsinu nýja að Lauga-
vegi 172. Forstöðumaður liins nýja útibús er Árni
H. Bjarnason, sem er einn af elztu starfsmönnum
Verzlunarbankans. Sú nýjung var upp tekin við
opnun þessa útibús, að viðskiptamenn bankans
geta nú fengið sig afgreidda úr bifreiðum sínum
um glugga, sem er sérstaklega gerður fyrir slíka
afgreiðslu. Slíkir bílabankar hafa tíðkazt erlendis
og átt vaxandi vinsældum að fagna.
Við opnun útibúsins flutti formaður bankaráðs
Verzlunarbankans, Þorvaldur Guðmundsson, ræðu.
þar sem hann skýrði frá þvi, að starfsemi bankans
hefði aukizt svo mjög frá J)ví að hann yfirtók alla
starfsemi Verzlunarsparisjóðsins, að stöðugt þrengd-
ist um alla möguleika til eðlilcgs vaxtar í húsakynn-
um hans að Bankastræti 5. Hefði bankaráð Verzl-
unarbankans því ákveðið að setja á stofn útibú,
bæði til þess að bæta þjónustuna við viðskiptavini
og draga úr álaginu á afgreiðslu aðalbankans. í
þessu sambandi skýrði Þorvaldur frá því að heild-
arinnistæður bankans væru nú um helmingi hærri
en þær voru þegar hann tók til starfa.
Síðan sagði Þorvaldur Guðmundsson:
„Verzlunarbankinn hefur fyrir alllöngu óskað eft-
ir því við framkvæmdastjórn Seðlabankans, að
bankanum verði veitt heimild t.il að hafa með
höndum erlend viðskipti. Enn sem komið er hefur
málaleitan vor ekki mætt jákvæðum skilningi. Eins
og málin standa í dag eru aðeins tveir af bönkum
í eigu ríkisins löggiltir til þess að hafa með hönd-
um öll erlend bankaviðskipti landsmanna. Aðrir fá
þar ekki nærri að koma. Er hér um algjörlega
óviðunandi ástand að ræða, þar sem mjög er skert
öll aðstaða þeirra banka, er aðeins hafa heimild til
innlendrar bankaþjónustu, gagnvart eðlilegri þjón-
ustu við viðskiptamenn sína.
Á þessu ástandi verður að ráða bót og það fyrr
en seinna. Við fyrirsvarsmenn Verzlunarbankans
vitum, að við mælum fyrir munn allrar verzlunar-
stéttarinnar, þegar við óskum eindregið eftir því,
Það nýmæli er í útibúi Verzlunarbankans, að viðskiptavinir
geta ekið að glugga í bifreiðum sínum og fengið afgreiðslu í
gegnum hann. Fyrir innan gluggann er Arni H .Bjarnason, for-
stöðumaður útibúsins.
að bankanum verði veitt heimild til erlendra við-
skipta. Við óskum ekki eftir neinum forréttindum
bankanum lil handa, þar sem við teljum eðlilegt
að allir bankar hafi sömu starfsaðstöðu. Á þann
hátt einan hafa allir bankar jafna aðstöðu til þess
að gefa viðskiptamönnum sínum góða þjónustu,
sem jafnframt skapar heilbrigða samkeppni í banka-
starfsemi landsins, en frjáls bankastarfsemi er einn
liður í frjálsri verzlun, sein aftur leiðir af sér
frjálsa viðskiptahætti öllum landsmönnum til hags.“
Svo er helzt að sjá, að ökumenn séu ekki hræddir
um að missa lífið — aðeins ökuskírteinið. (E. Marp-
les, fyrrum samgöngumálaráðherra Breta.)
30
frjalsverzlun