Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 32
VftlíúÆkaðcitiuM
„Hann er snaggaralegasti strákur, hann sonur þinn. Hvað
starfar hann?"
„O. minnstu ekki á það, þstta er landeyða, gerir ekkert annað
liðlangan daginn en að glápa á sjónvarpið!"
★
Þrír menn, allir heldur heyrnarsljóir, voru á leið
til London í bíl, sem var fremur hávær. Þegar þeir
voru komnir í námunda við borgina, spyr einn:
„Er þetta London?“ „Nei, það er fimmtudagur,"
svarar annar. „Það er ég líka,“ flýtti sá þriðji sér
að segja. Stönzum hér og fáum okkur einn lítinn!“
■k
„Smith,“ sagði vinnuveitandinn, „þér hafið nú
unnið hjá mér í fimm ár. Ég virði það við yður og
þér skuluð hafa það til marks, að héðan í frá verðið
þér ávarpaður hr. Smith.“
★
„Ekki finnst mér hann nú líta vel út þessi smá-
fiskur, sem þér hafið í dag,“ sagði viðskiptavinur
einn í fiskbúðinni snúðugt.
„Nú, ef þér viljið ekki annað en það, sem gengur
í augum, af hverju farið þér ekki eitthvað annað
og kaupið yður gullfisk?“ hreytti fisksalinn úr sér
á móti.
★
Kennarinn: „Getið þér sagt mér, hvað fyrrver-
andi stjórnandi Rússlands var kallaður?“
33
Nemandinn: „Zar.“
Kennarinn: „Rétt. Og konan hans?“
Nemandinn: „Zarína.“
Kennarinn: „Hárrétt. En börnin þeirra?“
Nemandinn: „Zardínur!“
★
Kona vék sér að lögregluþjóni á götunni og sagði
við hann:
„Heyrið þér, það er maður, sem veitir mér eftir-
för, ég held liann sé áreiðanlega drukkinn.“
Lögregluþjónninn skoðaði konuna í krók og kring
og anzaði:
„Já, það hlýtur hann að vera.“
★
Ósköp kann hún sig nú alltaf vel. Aldrei hendir
hún svo bolla í manninn sinn, að hún taki ekki
teskeiðina úr áður.
★
Maður getur verið bindindismaður á vín og tóbak
og neytt grænmetis eingöngu og samt heitið Adolf
Hitler. (Karl Bartli.)
„Ertu enn einu sinni að lœðast fram úr eftir flöskunni?"
„Nei, elskan mín. Eg er bara að horfa á blessaðan jólasnjó-
inn."
FRJÁLSVERZLUN