Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1963, Page 17

Frjáls verslun - 01.08.1963, Page 17
Útlendingur, sem staddur var í Bretlandi, spurði eitt sinn kunningja sinn að því, hvernig hann gæti auðveldlegast kynnst helztu ein- kennum brezku þjóðarinnar. „Auðvitað með því að lesa The Times“ var svarið. Gjarnan hefði mátt bæta við: ,,0g byrj- aðu að lesa bréfin, sem lesendur blaðsins senda því.“ í þeim dálkum er nefnilega að finna þver- skurð af almenningsálitinu í Bretlandi hverju sinni. Þar kennir margra grasa, skammarbréf frá þekktum stjórnmálamanni, sem er óánægð- ur með störf ríkisstjórnarinnar, bréf frá fugla- skoðara sem er mjög í mun að tilkynna að hann hafi orðið fyrstur til að heyra í gauk, beiðni um styrk til einhvers mannúðarmáls undirrituð af þekktum körlum og konum. Við hlið á bréfi, þar sem stærðin á ljósastaurum í einhverju út- hverfi Lundúnaborgar er gagnrýnd, kann að LITAZT UM í BREZKUM BLAÐAHEIMI vera skrif herforingja, sem látið hefur af störf- um fyrir aldurs sakir, og er hreint ekki sam- mála fréttaritara Times um orsakir þess, að Har- aldur konungur tapaði orustunni við Hastings. Forsíðan um barnsfæðingar og mannslát Hvað sem á gengur í veröldinni breytist for- síðan á Times ekki. Hvorki styrjaldir né aðrir stórviðburðir hagga þeirri gömlu hefð að for- síða blaðsins sé helguð tilkynningum um barns- fæðingar, giftingar og mannslát. Og ekki má gleyma hinum frægu auglýsingum um „persónu- leg málefni“: Fréttirnar, hversu sögulegar, sem þær kunna að vera, verða að vera á sínum stað, — á innsíðum blaðsins. Krúnan efst á forsíðu blaðsins er ekki merki þess að The Times sé hið opinbera málgagn Bretlandsstjórnar eins og margir halda. Times er óháð dagblað og eru aðaleigendur þess, Astor lávarður af Hever og John Walter. Hinn síðar- nefndi er beinn afkomandi stofnanda blaðsins, sem þ. 1. janúar árið 1785 gaf út fyrsta tölu- blaðið af Daily Universal Register, sem árið 1788 var endurskírt og hlaut nafnið The Times. Síðan hefur hvert einasta tölublað verið gefið út frá sama stað, Printing House Square, Lund- únum. FRJÁLS VERZLUN 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.