Frjáls verslun - 01.01.1966, Síða 3
sjóðsins, sem fengið hafði luisnæði í Hafnarstræti 1.
Þann dag voru lagðar inn í sparisjóðinn röskar 1,2
milljónir króna, sem segja má að hafi verið ágætt
á þeirn tíma.
Reksturinn miðaður við bankastoínun
— Segja má, að starfsemi sparisjóðsins hafi þegar
í upphafi vaxið hröðum skrefum, svo sem þróun
fyrirtækisins frá ári til árs ber ljóslega með sér. Við
sniðum starfsemi Verzlunarsparisjóðsins þegar í
upphafi eftir rekstri viðskiptabanka með það þá
þegar í huga, að breyta sparisjóðnum í banka síðar-
meir, þegar aðstæður til þess væru fyrir hendi.
— Ilvenær hóst hinn raunverulegi undirbúningur
að bankastofnuninni?
— A aðalfundi Verzlunarsparisjóðsins 7. marz
1959 var samþykkt tillaga, þar sem sagði, að fund-
urinn teldi tímabært að stofnaður yrði Verzlunar-
banki íslands. Fól fundurinn stjórn sparisjóðsins
að hefjast þegar handa um stofnun bankans.
— A öndverðu ári 19(50 sneri stjórn sparisjóðsins
sér til ríkisstjórnarinnar og óskaði eftir að ábyrgðar-
mönnum Verzlunarsparisjóðsins yrði heimilað að
beita sér fyrir stofnun ldutafélags um rekstur banka,
er yfirtæki alla starfsemi Verzlunarsparisjóðsins.
Hafði þá þegar verið gerð athugun á því af hálfu
sparisjóðsins með hverju móti slíkt yrði gert á sem
hagkvæmastan hátt, og hafði prófessor Armann
Snævarr unnið að þessari athugun og undirbúningi
tillagna ásamt stjórninni. Málaleitan sparisjóðs-
stjórnarinnar mætti þegar í upphafi skilningi ríkis-
stjórnarinnar, og beitti hún sér fyrir flutningi frum-
varps til laga um Verzlunarbanka íslands hf. Voru
lög þessi lögð fram á Alþingi vorið 1960 og afgreidd
á því þingi.
— Hinn 14. júní sama ár samþykktu ábyrgðar-
menn Verzlunarsparisjóðsins að neyta heimildar
laganna um stofnun banka og var stjórn sparisjóðs-
ins falið að undirbúa samþykktir og reglugerð fyrir
bankann, og leggja síðan fyrir stofnfund. Til stofn-
fundar bankans var síðan boðað 4. febrúar 1961 og
var sá fundur haldinn í Tjarnarbíó. Sátu hann um
350 manns, og var var formlega gengið frá stofnun
bankans.
Úr afgreiSslusölum Verzlunarbanka fslands aS Bankastræti S
FRJÁLS VERZLUN
8