Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 21
Úr eldhúsi hins nýja hótels. Það er sagt eitt hið íullkomnasta sinnar tegundar í allri Norðuráliu. Nýia hótelið Húsið er 1600 fermetrar að grunnfleti og stærð þess 23500 rúmmetrar. Húsið er byggt í mjög háum gæðaflokki (stand- ard) á alþjóðlegum mælikvarða. Loftræstikerfi (air- condition) og loftræstingakerfi eru af fullkomnustu gerð. Eru loftræstingakerfi fyrir fyrir öll gesta- herbergin, baðherbergi og snyrtiherbergi, en loft- kælikerfi fyrir veitingasali, bari og aðrar stærri vist- arverur á 1. hæð, og fyrir eldhúsin. í gestaherbergj- um öllum geta gestir sjálfir ráðið því hitastigi, sem þeir kjósa að hafa, með einföldu stillingartæki (Thermostat) í herberginu. Rakastigi hússins er einnig stjórnað af sjálfvirkum vélum. í hótelinu er frystimiðstöð, sem annar öllum kælum og frystum, sem eru víðs vegar um eldhúsdeildir hótelsins. Mjög fullkomið brunaaðvörunarkerfi er í húsinu, sem gerir samstundis aðvart um reyk eða eld, hvar sem slíkt kynni að koma upp. Vaktmaður hótelsins getur í einu vetfangi séð hvar slíkt bæri að í hús- inu og gert gagnráðstafanir. Loftræsting, rafmagn og hiti í loftræstingarkerfunum eru sjálfvirkar lokur, sem loka stokkakerfunum um leið og reyks verður vart. í brunastigum jafnt sem í aðalstigahúsi eru einnig sjálfvirkir loftháfar, sem taka til starfa um leið og slíkt ástand skapast. Þá er fjarskiptakerfið í húsinu af fullkomnustu gerð. Sjálfvirkir símar eru í öllum gestaherbergj- unum, og öðrum vistarverum hótelsins, og má hringja beint livert sem er innan hótelsins eða utan. í öllum gestaherbergjunum eru útvarpsviðtæki, og geta gestir valið um útvarpsstöð eða stillt á hljóm- listarupptöku hótelsins sjálfs. Einnig eru sjónvarps- lagnir í öllum gestaherbergjunum og sjónvarpstæki fyrir þá, sem þess kunna að óska. í hótelinu er svo kallað þernukerfi, sem sendir boð til starfsfólksins, hvar sem það er að starfi í gestaherbergjunum. Rafmagnskerfi hússins er gert fyrir 220 volt. Allur búnaður þess er af fullkomnustu gerð. Vandað er mjög til lampa og lýsingar fyrir gesti og starfsfólk. í hótelinu eru 5 lyftur, tvær hraðgengar gestalyftur, FRJÁLS VERZLUN 21

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.