Frjáls verslun - 01.01.1966, Síða 21
Úr eldhúsi hins nýja hótels. Það er sagt eitt hið íullkomnasta sinnar tegundar í allri Norðuráliu.
Nýia hótelið
Húsið er 1600 fermetrar að grunnfleti og stærð
þess 23500 rúmmetrar.
Húsið er byggt í mjög háum gæðaflokki (stand-
ard) á alþjóðlegum mælikvarða. Loftræstikerfi (air-
condition) og loftræstingakerfi eru af fullkomnustu
gerð. Eru loftræstingakerfi fyrir fyrir öll gesta-
herbergin, baðherbergi og snyrtiherbergi, en loft-
kælikerfi fyrir veitingasali, bari og aðrar stærri vist-
arverur á 1. hæð, og fyrir eldhúsin. í gestaherbergj-
um öllum geta gestir sjálfir ráðið því hitastigi, sem
þeir kjósa að hafa, með einföldu stillingartæki
(Thermostat) í herberginu. Rakastigi hússins er
einnig stjórnað af sjálfvirkum vélum. í hótelinu er
frystimiðstöð, sem annar öllum kælum og frystum,
sem eru víðs vegar um eldhúsdeildir hótelsins.
Mjög fullkomið brunaaðvörunarkerfi er í húsinu,
sem gerir samstundis aðvart um reyk eða eld, hvar
sem slíkt kynni að koma upp. Vaktmaður hótelsins
getur í einu vetfangi séð hvar slíkt bæri að í hús-
inu og gert gagnráðstafanir.
Loftræsting, rafmagn og hiti
í loftræstingarkerfunum eru sjálfvirkar lokur, sem
loka stokkakerfunum um leið og reyks verður vart.
í brunastigum jafnt sem í aðalstigahúsi eru einnig
sjálfvirkir loftháfar, sem taka til starfa um leið og
slíkt ástand skapast.
Þá er fjarskiptakerfið í húsinu af fullkomnustu
gerð. Sjálfvirkir símar eru í öllum gestaherbergj-
unum, og öðrum vistarverum hótelsins, og má
hringja beint livert sem er innan hótelsins eða utan.
í öllum gestaherbergjunum eru útvarpsviðtæki, og
geta gestir valið um útvarpsstöð eða stillt á hljóm-
listarupptöku hótelsins sjálfs. Einnig eru sjónvarps-
lagnir í öllum gestaherbergjunum og sjónvarpstæki
fyrir þá, sem þess kunna að óska. í hótelinu er svo
kallað þernukerfi, sem sendir boð til starfsfólksins,
hvar sem það er að starfi í gestaherbergjunum.
Rafmagnskerfi hússins er gert fyrir 220 volt. Allur
búnaður þess er af fullkomnustu gerð. Vandað er
mjög til lampa og lýsingar fyrir gesti og starfsfólk.
í hótelinu eru 5 lyftur, tvær hraðgengar gestalyftur,
FRJÁLS VERZLUN
21