Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 19

Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 19
Glæsilegt Loftleiðahótel tekið til starfa Árið lí)öí2 ákváðu Loftleiðir að reisa byggingu fyrir aðalskrifstofur félagsins í Reykjavík, og er félagið fékk lóð á Reykjavíkurílugvelli var einnig afráðið að byggja þar tlugstöð. Framkvæmdir voru hafnar haustið 1962 og fyrri hluta sumars 1964 fluttust skrifstofur og flugafgreiðsla í nýja bygg- ingu á flugvellinum. Þá var einnig búið að steypa undirstöður og kjallara fyrirhugaðrar flugstöðvar, þar sem ráðgert hafði verið upphaflega að halda einnig uppi gisti- og veitingahússrekstri að tak- mörkuðu leyfi. í millitíðinni hafði sú breyting á orðið, að félagið varð að flytja flugreksturinn frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar vegna kaupa á Rolls Royce flugvélunum, sem þurftu lengri og ör- uggari flugbrautir en þær, sem fyrir voru í Reykja- vík, og leiddi það til endurskoðunar á fyrri hug- myndum um byggingaframkvæmdirnar. Fyrirsjáanlegur gistihúsaskortur höfuðborgarinn- ar á næstu árum, sívaxandi fjöldi ferðamanna, einkum þeirra, er tóku boði Loftleiða um stuttai orlofsdvalir á íslandi, og trú á að auknir möguleikar til móttöku ferðamanna myndu leiða til verulegrar fjölgunar þeirra, ollu því, að stjórn Loftleiða tók að hugleiða, hvort ekki myndi hyggilegt að reisa stórt liótel á þeiin grunni, sem upphaflega var ætl- aður myndarlegri flugstöðvarbyggingu. Undirbúningsrannsóknir vegna hinna breyttu viðhorfa hófust sumarið 1964, og voru þær gerðar af Teiknistofunni sf., Arnuila 6, og Verkfræðistofu Stefáns Olafssonar. Að þeim loknum vaj' ákvörðun tekin um að byggja þar fjórlyft hótel, sem áður var fyrirhugað að reisa flugstöð, og skyldi þar einnig verða flugafgreiðsla félagsins í ltevkjavik. Var strax hafinn undirbúningur þessara nýju bvggingafram- kvæmda. Skipulagning Arkitektarnir Gísli Halldórsson, Jósef Reynis og Ólafur Júlíusson hófu nú að teikna hótelið. Þeir teiknuðu einnig allar innréttingar í kjallara, nema eldhús, en innréttingateikningar þcss gerði danskur arkitekt, Bent Severin að nafni. Hann skipulagði einnig veitingasali, vínstúkur, anddyri og sjálfsaf- greiðslu (kaffiteríu), og vann hann verk sín í sam- ráði við Þorvald Guðmundsson, sem ráðinn var, 1. apríl 1965, til aðstoðar um búnað, gerð og fyrstu meiri árangur fæst með því ;ið vinna saman, en hver og einn sé að ota sínum eigin tota. Öll þessi samtök og mörg fleiri hafa sameinað Vestfirðinga, aukið skilning þeirra á hvers annars hag. Rétt er ennfremur að geta þess að flestir út- vegsmenn á Vestfjörðum hafa stofnað sitt eigið inn- flutningsfyrirtæki um kaup á veiðarfærum fyrir út- gerðina. ísfirðingar liafa alla tíð átt því láni að fagna að eiga dugmikla og áræðna sjómenn, — þessi stétt með skipstjórana í broddi fylkingar, hefur verið sá kjarni sem sett hefur sterkast svipmót á lífið í bænum frá því ég man fyrst eftir mér, og á 100 ára afmæli ísafjarðarkaupstaðar minnumst við fyrst og frcmst þeirra manna, sem byggðu upp þetta bæjar- félag, — háðu hér stranga lífsbaráttu við hörð skil- yrði, og létu aldrei bugast fyrr en yfir lauk. Minningin um þá er okkur hlý og fögur. í dag eigum við þá ósk að þeir sem nú heyja þessa söniu lífsbaráttu, þó við ólíkt betri skilyrði, megi ávallt vel farnast og heill og hamingja megi fylgja þeim um ókomin ár. — Það er trú mín og von að sjávar- útvegurinn verði hér eftir, sem hingað til, höfuð- aflgjafi nýrra verkefna og aukinna framfara. PRJÁLS VERZUIN 19

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.