Frjáls verslun - 01.01.1966, Blaðsíða 22
ein starfsmannalyfta og tvær matarlyftur. Lyftur
þessar ganga á allar hæðir. 1 húsinu eru 3 stigahús,
þar af tvö fyrir varaútganga og starfsfólk og eitt
aðalstigahús við gestalyfturnar.
I hóteli þessu hefir verið lögð sérstök áherzla á
hljóðdeyfingu milli herbergja og frá veitinga- og
samkomusölum, þannig að gestir njóti fullkomins
næðis, þegar þeir óska. Allir vcggir milli herbergja
eru sérstaklega byggðir með þetta fyrir augum.
Sömuleiðis eru sérstök hljóðheld loft ofan við veit-
ingasalina. Sérstakar ráðstafanir eru einnig gerðar
til þess að iiindra hljóðburð um leiðslukerfi húss-
ins.
Húsið er hitað upp mcð hveravatni frá Hitaveitu
Reykjavíkur. Allt baðvatn á gestaherbergjunum og
heitt vatn fyrir framleiðslu er lútað upp mcð milli-
hiturum, þannig að hveravatnið er hvergi notað
beint nema í sundlauginni. Reiknað er með að til
hitaorku þurfi hótelið um 80—90 þúsund rúmmetra
af hveravatni árlega og af raforku um eina milljón
og eitt hundrað þúsund kílóvattstundir.
Komið í kjallarann
í kjallara hússins er aðaleldhús hótelsins, sem er
eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar í Norðurált'u.
Þar er einnig mjög fullkomið bakarí. Tilheyrandi
eldhúsinu eru ýmis konar matvælageymslur og for-
vinnsluherbergi fyrir matvæli, frysti- og kæligeymsl-
ur, vínkjallari o. fl. Öll eldhúsdeildin er lögð brennd-
um leirflísum í hólf og gólf, og allur búnaður gerður
úr ryðfríu stáli. í kjallara eru einnig ýmis konar
þægindi fyrir starfslið hótelsins, svo sem búnings-
herbergi, snyrtihergergi með böðum o. fl., allt flísa-
lagt í hólf og gólf. Þá eru þar stór og vönduð snyrti-
herbergi karla og kvenna fyrir veitingasalina á 1.
hæð hússins og önnur fyrir hótelafgreiðsluna. Einn-
ig eru í kjallara afkastamikið þvottahús, geymslur
fyrir hótelið, vörumóttaka, og salur fyrir loftræst-
ingarvélar.
Úr aðalanddyri hótelsins er gengið niður í sund-
laugardeildina, sem einnig er í kjallaranum. í for-
stofu sundlaugardeildar eru hárgreiðslustofa og fót-
snyrtistofa. Gestalyftur ganga niður í þessa for-
stofu. Þar inn af taka við búningsklefar, baðklefar,
finnskar gufubaðstofur og hvíldarherbergi. Þarna
er einnig nuddstofa og aðstaða til Ijósbaða. Sjálf
sundlaugin er inn af baðdeildunum í fagurlega flísa-
lögðum sal. Við enda laugarinnar er dálítil kerlaug,
til heitari baða. í laugunum er hveravatn, sem fer
stöðugt í gegn um fullkomin hreinsitæki.
Á fyrstu hæð
Á 1. hæð er aðalanddyri hótelsins með gestamót-
töku og skrifstofum. Þar er einnig sölubúð, tvö
fundaherbergi og fatageymsla. Úr anddyri er gengið
inn í aðalborðsal hótelsins og vínstúku hótelgesta.
Borðsalur þessi er fagurlega skreyttur blómum og
rúmar 100 manns í sæti. Þar er hljómsveitarpallur
og dansgólf. Hótelanddyrið og borðsalurinn er lagt
með ljósum marmara, „tavertin oriental". Veggir
eru klæddir með vengivið, japanvið og íslenzku
bergi. Vínstúka hótelgesta rúmar 50 manns í þægi-
leg sæti. Þar verða borð öll úr hvítum marmara, en
bardiskur í dökkum grásteini og vengivið.
Úr hótelanddyrinu er cinnig gengið beint inn í
flugafgreiðslu Loftleiða í Reykjavík. Þar verður, auk
ýrnis konar þjónustu varðandi flugferðir, stór bið-
salur, rakarastofa, sölubúð og upplýsingamiðstöð
um flugþjónustu félagsins.
Þá er á 1. hæð veitingasalur fyrir um 160 manns,
með sér inngangi að utan, rúmgóðu anddyri aðal-
skrifstofu veitingastjóra og fatageymslu. Við þenn-
an veitingasal er vínstúka, er rúmar 70 manns í
sæti, og fundarsalur. Þarna er einnig veitingasala
með sjálfsafgreiðslu, og rúmar hún um 60 manns í
sæti. Þessi salarkynni eru bæði ætluð hótel- og að-
komugestum. í aðalsal er hljómsveitarpallur og
dansgólf úr marmara. Fyrir veitingasalina eru einn-
ig á 1. hæð eldhúsdeild fyrir uppþvott, framleiðslu
í veitingasal og morgunverðareldhús.
Gestaherbergin
Á þrem efri hæðurn hússins eru 108 hótelherbergi
með 216 rúmum. Af þeim eru 100 eins eða tveggja
manna en 8 stærri og íburðarmeiri. Minni herbergin
eru öll með baðherbergjum og forstofu. Baðherberg-
in eru búin fullkomnum steypibaðsklefa, auk. sal-
ernis og handlaugar. Baðherbergi jiessi eru flísalögð
í hólf og gólf, og vandað mjög til alhs búnaðar. í for-
stofu eru tvöfaldir fataskápar og töskuskemill, hvort
tveggja úr harðviði.
Veggir herbergjanna eru klæddir álmviði. í her-
bergjunum eru nýtízku húsgögn úr teak og stáli.
Þar er rúm og sófi með tvöföldum fjaðradýnum.
Sófanum er hægt að breyta í fullkomið rúm, þegar
tveir gestir nota herbergið. I herbergjum þessum
eru tveir ágætir hægindastólar, sófaborð og stórt
snyrtiborð, sem nota má jöfnum höndum sem skrif-
borð. Við snyrtiborðið er skrifborðsstóll. Lýsing í
herbergjum er frá loftljósi, og gólflampa, en þar
22
FRJÁLS VERZLUN