Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1966, Side 5

Frjáls verslun - 01.01.1966, Side 5
Skipling innstæbna milli sparisjóös og hlauparoikninga. v/'ð árslok í milljónum króna. heimild til þess að liafa gjaldeyrisviðskipti með höndum. — Þá liafa að undanförnu farið fram gagngerðar endurbætur á húsnæði bankans í Bankastræti 5. Hefur bankinn nú fengið þar aðstöðu, sem er full- komlega sambærileg við það, sem bezt gerist hér- lendis. — Jafnframt breytingunni á húsnæði bankans hafa verið gerðar ráðstafanir til endurbóta á öllu afgreiðslu- og bókunarkerfi hans. Eru nú þegar í notkun IBM bókunarvélar, er vinna eftir gata- spjaldakerfi (Data Processing Systern), en í þeim verður allt bókhald bankans unnið. Mun þessi breyting spara öllum viðskiptamönnum bankans bið, þegar þeir þurfa að leita til afgrciðslunnar með erindi sín. — Verzlunarbankinn mun í starfi sínu kappkosta að vinna ötullega að því hlutverki sínu að efla frjálsa verzlun í landinu. Hann hefur nú þegar með starfi sínu náð árangri, en vafalítið mun áhrifa hans gæta í vaxandi mæli eftir því, sem árin líða, sagði Ilöskuldur Ólafsson að lokum. Merk nýjung: Sfofnlánadeild verzlunarfyrirfækja Á meðan þetta tölublað Frjálsrar verzlunar var í undirbúningi samþykkti Alþingi frumvarpið um Stofnlánadeild verzlunarfyrirtækja. Fjárhagsnefnd þingsins varð sammála um að mæla með frum- varpinu, og fer hér á eftir ræða framsögumanns nefndarinnar í Efri deild, Sveins Guðmundssonar: „Frumvarp til laga um Stofnlánadeild verzlun- arfyrirtækja, 154. mál N. d., hefir verið til um- sagnar hjá Fjárhagsnefnd. Nefndin hefir orðið sam- mála um að mæla með frumvarpinu. Frumvarpið gefur Verzlunarbanka íslands h. f., rétt til að stofna sérstakan verzlunarlánasjóð inn- an Verzlunarbankans, sem sérstaklega er ætlað að aðstoða verzlunarfyrirtæki við byggingu eða end- urbyggingu verzlunarhúsnæðis. Verzlunarbanki íslands er stofnaður samkvæmt heimild í lögum nr. 46/1900. Samkvæmt þeim lög- um var ábyrgðarmönnum Verzlunarsparisjóðsins heimilað að bcita sér fyrir stofnun hlutafélags til bankareksturs, er jafnframt yfirtæki alla starfsemi Verzlunarsparisjóðsins, en liann hóf starfsemi sína á árinu 1956 og náði þegar í byrjun góðum árangri í starfsemi sinni. Það má segja að með stofnun Verzlunarbankans hafi rætzt gamall draumur margra kaupsýslu- og verzlunarmanna um að verzlunarstéttin ætti eigin banka. Er það raunar sarns konar þróun og átt hefir sér stað með öðrum þjóðum, nema hvað hér gerist það miklu síðar en annars staðar og liggja til þess ýmsar ástæður. Ilins vegar hefir sannazt Framhald á bls. 8 FRJÁLS VERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.